[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Á föstudaginn var kom út nýtt lag með Ritu Ora og Liam Payne. Lagið heitir „For you“ og mun heyrast í kvikmyndinni Fifty Shades Free sem er þriðja myndin í Fifty Shades of Grey- þríleiknum.
Á föstudaginn var kom út nýtt lag með Ritu Ora og Liam Payne. Lagið heitir „For you“ og mun heyrast í kvikmyndinni Fifty Shades Free sem er þriðja myndin í Fifty Shades of Grey- þríleiknum. Rita Ora mun einnig leika í myndinni en hún verður í hlutverki systur Christian Grey, aðal-karlpersónu myndarinnar. Tónlistin í fyrri myndunum hefur hlotið verðskuldaða athygli en dúett Zayn Malik og Taylor Swift „I don't wanna live forever“ var eitt af vinsælustu lögum K100 á liðnu ári. Spurning hvort „For you“ njóti sömu vinsælda?