Davíð Lúther Sigurðsson
Davíð Lúther Sigurðsson
Davíð Lúther Sigurðsson, stofnandi Basic International ehf., hefur selt 51% hlut sinn í félaginu til Manhattan ehf.. Basic International sem sér um íþróttaviðburðina The Color Run og Gung Ho sem notið hafa töluverðra vinsælda hér á landi undanfarin ár.

Davíð Lúther Sigurðsson, stofnandi Basic International ehf., hefur selt 51% hlut sinn í félaginu til Manhattan ehf.. Basic International sem sér um íþróttaviðburðina The Color Run og Gung Ho sem notið hafa töluverðra vinsælda hér á landi undanfarin ár. Fyrir átti Manhattan ehf. 49% hlut í Basic International, og á því félagið að fullu eftir kaupin.

Í tilkynningu frá Basic International segir að kaupverðið sé trúnaðarmál en Ragnar Már Vilhjálmsson mun taka við af Davíð Lúther sem framkvæmdastjóri fyrirtækisins. Basic International stefnir að því að halda allt að tólf viðburði á þessu ári á Íslandi, Danmörku og Svíþjóð. ai@mbl.is