Lana Del Rey
Lana Del Rey
Talsmaður útgáfufyrirtækis hljómsveitarinnar Radiohead, Warner/Chappell, segir ekki rétt að hljómsveitin hafi höfðað mál á hendur söngkonunni Lönu Del Rey vegna lags hennar „Get Free“ sem Radiohead-liðar segja líkjast mjög lagi þeirra...
Talsmaður útgáfufyrirtækis hljómsveitarinnar Radiohead, Warner/Chappell, segir ekki rétt að hljómsveitin hafi höfðað mál á hendur söngkonunni Lönu Del Rey vegna lags hennar „Get Free“ sem Radiohead-liðar segja líkjast mjög lagi þeirra „Creep“. Hið rétta sé að fulltrúar beggja hafi átt í viðræðum og fulltrúar Radiohead hafi óskað þess að Del Rey viðurkenndi að laglínur úr „Get Free“ væru sóttar í „Creep“. Engin málsókn hefði verið höfðuð en Radiohead krefðist þess að fá allar greiðslur fyrir flutning á lagi Del Rey.