Gústaf Bjarnason
Gústaf Bjarnason
Íslenska landsliðið mætir sænska landsliðinu í upphafsleik sínum á EM í Króatíu að þessu sinni. Tvisvar áður hafa lið þjóðanna leitt saman hesta sína í fyrstu umferð EM. Í bæði skiptin hafa Svíar borið sigur úr býtum. Í fyrsta leik Íslands á EM, 21.

Íslenska landsliðið mætir sænska landsliðinu í upphafsleik sínum á EM í Króatíu að þessu sinni. Tvisvar áður hafa lið þjóðanna leitt saman hesta sína í fyrstu umferð EM. Í bæði skiptin hafa Svíar borið sigur úr býtum.

Í fyrsta leik Íslands á EM, 21. janúar 2000 í Rijeka í Króatíu unnu Svíar öruggan sigur, 31:23. Gústaf Bjarnason var markahæstur í íslenska liðinu með fimm mörk.

Átta árum síðan mættust liðin. aftur í upphafsleik keppninnar í Þrándheimi í Noregi. Aftur unnu Svíar örugglega, 24:19, eftir að hafa verið 10 mörkum yfir um skeið. „Niðurlæging í Niðarósi,“ sagði í fyrirsögn í Morgunblaðinu daginn eftir. iben@mbl.is