Sunna Dóra Möller er nýr sóknarprestur við Hjallasókn í Kópvogi. Hún kemur þar til starfa á næstu dögum, en hún hefur þjónað við Akureyrarkirkju frá árinu 2012. Eiginmaður hennar er sr.

Sunna Dóra Möller er nýr sóknarprestur við Hjallasókn í Kópvogi. Hún kemur þar til starfa á næstu dögum, en hún hefur þjónað við Akureyrarkirkju frá árinu 2012. Eiginmaður hennar er sr. Bolli Pétur Bollason, sóknarprestur í Laufási við Eyjafjörð, og þar búa þau með fjölskyldu sinni.

„Við ætlum ekki að vera í fjarbúð og stefnum á flutninga suður. Það eru því heilmiklar breytingar framundan hjá fjölskyldunni,“ sagði sr. Sunna Dóra í samtali við Morgunblaðið. Samkvæmt þessu má því gera ráð fyrir að Laufásprestakall verði auglýst laust til umsóknar innan tíðar.

Alls eru um 6.500 manns í Hjallasókn í Kópavogi, sem nær yfir byggðina í Fossvogsdal og í Hjallahverfinu og þaðan niður að Reykjanesbrautinni. Auk sóknarprests þjónar prestur í hálfu starfi við kirkjuna, sem er Karen Lind Ólafsdóttir. sbs@mbl.is