Ólafía Jónsdóttir fæddist 22. júní 1925. Hún lést 15. desember 2017.

Útför Ólafíu fór fram 28. desember 2017.

Foreldar mínir Halla og Guðjón voru meðal frumbyggja á Flötunum í Garðahreppi.

Í þá daga var lítið um að vera og hittumst við unglingarnir í sjoppunni. Fljótlega kynntist ég tvíburunum Bödda og Guðna sem bjuggu í Ásgarði 5.

Ég var alltaf velkomin til foreldra þeirra, Ólu og Bjössa. Stundum fórum við í Vík í Mýrdal þar sem Óla var fædd og uppalin.

Hjá þeim heyrði ég fyrst í Jim Reeves sem þótti ekki beint inni en í dag á ég á alla CD og DVD með honum. Seinna hittumst við konan mín heitin Anna hjá Guðna í New Bedford, útgerðabæ þar sem Guðni bjó og starfaði, þegar ég var að flytja inn bíla. Takk Óla mín og innilegar samúðarkveðjur til ættingja og vina.

Heimir Guðjónsson.