Sauðárkrókur Bjarni Har. við dæluna.
Sauðárkrókur Bjarni Har. við dæluna. — Morgunblaðið/Björn Björnsson
Olíuverslun Íslands, bæjaryfirvöld á Sauðárkróki og heilbrigðisnefnd Norðurlands vestra hafa náð samkomulagi um framlengingu á starfsleyfi Olís við Verslun Haraldar Júlíussonar á Sauðárkróki. Bjarni Har.

Olíuverslun Íslands, bæjaryfirvöld á Sauðárkróki og heilbrigðisnefnd Norðurlands vestra hafa náð samkomulagi um framlengingu á starfsleyfi Olís við Verslun Haraldar Júlíussonar á Sauðárkróki. Bjarni Har. getur því aftur farið að afgreiða eldsneyti á bíla í dag.

Eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær féll starfsleyfið úr gildi um áramótin. Jón Ólafur Halldórsson, forstjóri Olíuverslunar Íslands, lýsti ánægju sinni með samkomulagið um starfsleyfið við yfirvöld á Sauðárkróki. Hann sagði að Olís hefði leitað að nýrri staðsetningu fyrir eldsneytisafgreiðslu á Sauðárkróki. Ljóst sé af hálfu bæjarfélagsins að ekki verði um frekari uppbyggingu að ræða við verslunina hjá Bjarna Har. Því verði Olís að byggja upp á nýjum stað þegar þar að kemur. gudni@mbl.is