Svíar Kristján Andrésson er á leið á sitt annað stórmót sem landsliðsþjálfari Svía en hann stýrði þeim til sjötta sætis á HM í Frakklandi fyrir ári síðan.
Svíar Kristján Andrésson er á leið á sitt annað stórmót sem landsliðsþjálfari Svía en hann stýrði þeim til sjötta sætis á HM í Frakklandi fyrir ári síðan. — Reuters
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Mótherjarnir Kristján Jónsson kris@mbl.is Ísland mætir Svíþjóð, Króatíu og Serbíu í A-riðli Evrópumótsins í Split í Króatíu en þrjú af þessum fjórum liðum komast áfram og leika í milliriðli í Zagreb.

Mótherjarnir

Kristján Jónsson

kris@mbl.is

Ísland mætir Svíþjóð, Króatíu og Serbíu í A-riðli Evrópumótsins í Split í Króatíu en þrjú af þessum fjórum liðum komast áfram og leika í milliriðli í Zagreb. Morgunblaðið fékk Gunnar Magnússon, þjálfara Hauka og fyrrverandi aðstoðarþjálfara íslenska landsliðsins, til að fara yfir mótherjana þrjá og við hverju má búast í leikjunum gegn þeim.

Fyrsti leikurinn er gegn Svíum í dag, föstudaginn 12. janúar, og það er upphafsleikur A-riðilsins klukkan 17.15 en klukkan 19.30 eigast við grannþjóðirnar Króatía og Serbía.

Náðu góðum árangri á HM

„Kristján Andrésson er núna á sínu öðru stórmóti með Svíana. Að mínu mati spiluðu þeir skemmtilegan handbolta á HM í fyrra og enduðu í 6. sæti eftir að hafa tapað fyrir Frökkum í 8-liða úrslitum. Þeir hafa eins og við Íslendingar verið að ganga í gegnum ákveðin kynslóðaskipti og þess vegna var 6. sætið i Frakklandi góður árangur,“ segir Gunnar um árangur Svía undir stjórn Kristjáns í fyrra. Gunnar segist sjá fyrir sér að lið Svíþjóðar og Íslands séu nokkuð jöfn.

Betri í að verjast en sækja

„Liðin mættust í tveimur æfingaleikjum í október og þótt það sé ekki alveg marktækt myndi ég ætla að við værum að fara í 50-50-leik á móti Svíum. Styrkleiki Svíanna hefur alltaf verið vörn og markvarsla. Markvarðarparið frá Rhein-Neckar Löwen, þeir Appelgren og Palicka, klikkar sjaldan. Þá eru þeir með frábæra hornamenn; Tolbring samherja þeirra frá Löwen og Ekberg sem spilar með Kiel fremsta í flokki. Þótt línumaðurinn sterki Andreas Nilsson verði ekki með þeim á EM eru þeir með marga sterka línumenn,“ bendir Gunnar á en sænska liðið þykir öflugra í að verjast en sækja.

Útilína Svía er spurningarmerki

„Ef maður á að reyna að finna einhverja veikleika þá er spurning hvernig útilínan kemur út úr þessu móti. Það mun mæða mikið á Lukas Nilsson og Jim Gottfridsson. Svíar eru með marga unga og spennandi leikmenn og það er spurning hvort þeir ná að springa út í Króatíu. Einnig er varnarmaðurinn öflugi Tobias Karlsson hættur með landsliðinu og hann hefur bundið saman sænsku vörnina síðustu ár. Því er spurning hvernig Kristjáni tekst að fylla það skarð.

Við þurfum engu að síður að eiga mjög góðan fyrsta leik í Króatíu til að leggja Svía að velli. Markmenn okkar þurfa að halda í við sænsku markmennina og til þess þurfum við að spila mjög góða vörn. Sóknarlega þurfum við að vera mjög agaðir því við megum ekki hleypa Svíunum í auðveld hraðupphlaupsmörk. Aron Pálmars og Guðjón Valur verða að draga vagninn. Við getum unnið Svía á góðum degi og við skulum vona að þetta verði okkar dagur.“

Króatar vilja gull á heimavelli

Gunnar reiknar með Króötum mjög sterkum á heimavelli og telur að þeir geti farið alla leið í mótinu.

„Króatar ætla að tjalda öllu sem til er á heimavelli og ljóst að þeir ætla sér að vinna sinn fyrsta sigur á Evrópumótinu í ár. Þeir hafa náð aftur í þjálfarann skrautlega, Lino Cervar, sem gerði þá að heimsmeisturum í Portúgal 2003 og ólympíumeisturum í Aþenu 2004. Síðan þá hafa þeir ekki unnið neitt. Þeir náðu „aðeins“ í silfur þegar þeir héldu HM árið 2009 og núna ætla þeir sér gullið og ekkert annað. Þó svo að Duvnjak sé nýkominn til baka eftir erfið meiðsli mun Cervar pressa hann til að fórna sér í þetta verkefni,“ segir Gunnar og telur markvörsluna nánast eina spurningarmerkið varðandi Króata.

Cindric og Karagic lykilmenn

„Það verður bara að segjast eins og er að þeir virka mjög sterkir og þeir munu fá góðan stuðning á pöllunum. Lykilmenn þeirra fyrir utan Duvnjak eru Luka Cindric og Igor Karagic. Ef maður á að reyna að finna einhverja veikleika hjá þeim þá hefur markvarslan verið döpur á sumum mótum. Annars eru þeir með sterka leikmenn í öllum stöðum.“

Varðandi taktíkina segir Gunnar að Íslendingar þurfi eða leysa framliggjandi 3-2-1-vörn Króata en það hefur stundum reynst okkar mönnum erfitt.

Verðum að leysa varnarleikinn

„Ef við ætlum að vinna Króatíu verðum við að ná að leysa varnarleik þeirra. Þeir spila mikið svokallaða „3-2-1 Balkan“ sem líkist kannski mest ÍBV-vörninni sem við þekkjum hér heima. Okkur hefur nánast alltaf gengið mjög illa á móti þessari vörn. Varðandi sóknarleikinn hjá þeim þá eru þeir mjög sterkir maður á mann og með góðar klippingar. Þetta verður því mjög erfitt verkefni og það þarf allt að ganga upp hjá okkur til að við getum fengið eitthvað út úr þessum leik.

Ég spái því að Króatar mæti Frökkum í úrslitaleik og ég held að þeir fái ekki miklu betra tækifæri en þetta til að verða loksins Evrópumeistarar.

Gott að enda á Serbum

Það er mjög gott að mæta Serbum í síðasta leiknum í riðlinum því þeir eru óskrifað blað fyrir mót. Þegar þetta er skrifað er óvíst hvernig hópurinn þeirra mun líta út en það er samt ljóst að þeir verða án sterkra manna. Nú eru markvörðurinn Milic og skytturnar Rnic og Abutovic dottnir út úr hópnum. Einhverjar sögur eru um að fleiri sterkir leikmenn muni detta út í viðbót,“ segir Gunnar og segir Íslendinga geta nýtt fyrstu tvo leiki Serba til að kortleggja liðið.

Góðir í gömlu Júgóslavíu

„Þjálfarinn Jovica Cvetkovic er tekinn við þeim aftur en hann þjálfaði liðið á árunum 2006-2009. Þrátt fyrir að einhverjir leikmenn séu ekki leikfærir eru þeir með fullt af öflugum mönnum. Auk þess hefur Serbum alltaf gengið vel þegar þeir hafa spilað á stórmótum í gömlu Júgóslavíu. Það verður fróðlegt að sjá hvaða lið þeir mæta með til Króatíu og það mun koma okkur til góða að geta séð þá í fyrstu tveimur leikjunum. Okkur hefur oftast gengið vel á móti Serbíu og ég er sannfærður um að við vinnum þennan leik og tryggjum okkur áfram í milliriðil.“