Skapandi Sam Beam gengur undir listamannsnafninu Iron & Wine. Hann er fimm barna faðir og líklega sést hér í fætur þriggja þeirra.
Skapandi Sam Beam gengur undir listamannsnafninu Iron & Wine. Hann er fimm barna faðir og líklega sést hér í fætur þriggja þeirra.
Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Bandaríska söngvaskáldið Sam Ervin Beam gaf út sína fyrstu breiðskífu, The Creek Drank the Cradle , árið 2002 undir listamannsnafninu Iron & Wine, eða Járn og vín.

Helgi Snær Sigurðsson

helgisnaer@mbl.is

Bandaríska söngvaskáldið Sam Ervin Beam gaf út sína fyrstu breiðskífu, The Creek Drank the Cradle , árið 2002 undir listamannsnafninu Iron & Wine, eða Járn og vín. Platan sú hafði að geyma hugljúfar ballöður í þjóðlaga- og kántrístíl og einföldum útsetningum og hlaut Beam fljótlega athygli og vinsældir fyrir. Næstu plötur urðu meiri um sig og flóknari hvað útsetningar varðar, fleiri tónlistarmenn komu að þeim og þróaðist Iron & Wine frá því að vera ýmist sólólistamaður eða heil hljómsveit, þ.e. á tónleikum.

Síðasta og sjötta hljóðversskífa Iron & Wine, Beast Epic , kom út í fyrra en Beam hefur einnig gefið út plötur í samstarfi við aðra og stuttskífur auk þess að gefa út á netinu. Þá hefur hann líka gefið út plötur með fágætu efni í takmörkuðu upplagi og lög hans hafa verið flutt í ýmsum bandarískum kvikmyndum og sjónvarpsþáttum.

Iron & Wine heldur tónleika í Eldborg í Hörpu á sunnudaginn, 14. janúar, kl. 20 en um upphitun sér sænska tvíeykið Pale Honey.

Hart og mjúkt

Listamannsnafnið Iron & Wine er skemmtilega skrítið en hugmyndina að því fékk Beam í kjörbúð þegar hann kom auga á fæðubótarefni með heitinu Beef, Iron & Wine, þ.e. Nautakjöt, járn og vín. Þegar hann er spurður að því af hverju hann hafi ákveðið að sleppa nautakjötinu segir Beam að honum hafi þótt ógeðslegt að hafa það með. „Þetta er áhugaverð orðapörun,“ segir hann svo sposkur um járn og vín og að orðin eigi ágætlega við listsköpun hans. „Þessar þversagnir í lífinu, hið harða og hið mjúka sem ég reyni að fanga í lögum mínum og textum,“ útskýrir hann.

– Og þetta listamannsnafn festist líklega betur í minni en Sam Beam?

„Hárrétt,“ svarar Beam kíminn.

Myndlist, kvikmyndir og svo tónlist

Beam er með BA-gráðu í myndlist og MFA-gráðu í kvikmyndagerð og að háskólanámi loknu vann hann m.a. við gerð kvikmynda og sjónvarpsauglýsinga og kenndi einnig kvikmyndagerð í tveimur háskólum í Miami. Tónlistin var framan af áhugamál hjá Beam, hann samdi lög og texta heima hjá sér og áheyrendur hans voru eiginkona og börn.

Hann er spurður að því hvort myndlist og kvikmyndir hafi haft mikil áhrif á hann sem tónlistarmann og segir hann að vissulega smitist listræn sköpun milli þessara listgreina, þótt ólíkar séu.

„Ég held að textarnir mínir séu umfram allt myndrænir, ég er ekki mikið að útskýra hlutina í þaula þótt sumir séu auðvtiað beinskeyttari en aðrir,“ segir hann og líkir sumum textunum við málverk. Í grunninn snúist þessar ólíku greinar um að miðla einhverju til áhorfenda og áheyrenda.

„Gæti orðið skemmtilegt“

Beam segist sem ungur maður aldrei hafa átt von á því að starfa við tónlist. „Þegar tækifærið gafst sagði ég bara já, þetta gæti orðið skemmtilegt!“ segir hann og hlær að upprifjuninni.

Upphafið að tónlistarferlinum má rekja til æskuvinar Beam, Bens Bridwells, söngvara hljómsveitarinnar Band of Horses. Beam lét bróður Bridwells, Michael, hafa prufuupptöku af einu laga sinna sem komst í hendur ritstjóra tímaritsins Yeti sem setti lagið á safndisk sem fylgdi tímaritinu. Þannig vakti lagið athygli eins af eigendum plötútgáfunnar Sub Pop Records sem bauð Beam samning. Þá hafði Beam verið að semja og spila heima hjá sér í ein sjö ár.

Ögrar sjálfum sér

– Þú gafst út sjöttu hljóðversplötuna þína í fyrra. Hvernig telurðu að þú hafir þróast sem tónlistarmaður, ef þú lítur yfir þessar plötur?

„Ég hef án efa ögrað mér sem listamaður og farið ólíkar leiðir. En ég skal ekki segja, ég er ekki mjög góður í sjálfsskoðun,“ segir Beam og hlær. Hann njóti þess að kanna nýjar slóðir og þyki spennandi að vita ekki hvað er handan hornsins.

– Á nýjustu plötunni ertu snúinn aftur til einfaldleikans sem einkenndi fyrstu plötuna þína. Var það meðvituð ákvörðun?

„Ég lít á hana þannig að ég sé að fylgja ákveðnum hring frekar en að fara afturábak. Á síðustu árum hef ég prófað margar ólíkar nálganir, umfangsmeiri útsetningar og það var skemmtilegt en lögin á þessari plötu kröfðust annars konar nálgunar, meiri áherslu á textana frekar en flóknar útsetningar,“ svarar Beam.

Tilfinning sem verður sterkari með aldrinum

– Þú hefur sagt frá því að framrás tímans hafi verið þér hugleikin í textagerðinni. Veldur hún þér áhyggjum, finnst þér tíminn líða of hratt og árin þjóta hjá? Börnin vaxa auðvitað alltof hratt!

„Já, algjörlega,“ svarar Beam, sem er 43 ára og fimm barna faðir. „Mér hefur alltaf fundist það og með aldrinum magnast þessi tilfinning. En allar sögur fjalla með einum eða öðrum hætti um tíma, eitthvað gerist í upphafi og þaðan er haldið í ákveðna átt,“ bendir hann á réttilega. Beam kemur fram ásamt hljómsveit í Eldborg á sunnudaginn og segist hann bæði njóta þess að halda tónleika einn og með öðrum. „Ég tel mig heppinn að geta gert hvort tveggja,“ segir hann og bætir við að hann hlakki mikið til tónleikanna á Íslandi. Hingað hafi hann aldrei komið. „Það verða mörg ný lög en líka mörg gömul,“ segir hann um efnisskrána enda úr mörgum lögum að velja af 16 ára ferli.