Lionel Messi
Lionel Messi
Lionel Messi fór á kostum fyrir Barcelona þegar liðið vann Celta Vigo 5:0 í seinni leik liðanna í spænska konungsbikarnum í knattspyrnu, og einvígið þar með 6:1.

Lionel Messi fór á kostum fyrir Barcelona þegar liðið vann Celta Vigo 5:0 í seinni leik liðanna í spænska konungsbikarnum í knattspyrnu, og einvígið þar með 6:1. Messi skoraði fyrstu tvö mörkin og lagði svo upp það þriðja fyrir Jordi Alba, sem hafði átt stoðsendingarnar á Messi í báðum mörkum hans. Luis Suárez og Ivan Rakitic skoruðu einnig.

Philippe Coutinho var í sínum fyrsta leik á Camp Nou eftir að hafa orðið dýrasti leikmaður í sögu Barcelona, en fylgdist með úr stúkunni sem áhorfandi.