0:1 Andri Rúnar Bjarnason 30. með hjólhestaspyrnu af markteig uppundir þverslána. Albert Guðmundsson átti fyrirgjöf frá hægri, boltinn hrökk af varnarmanni á markið, Rivky Mokodompit varði vel en Andri var viðbúinn á markteignum.

0:2 Kristján Flóki Finnbogason 47. með föstum skalla rétt utan markteigs eftir aukaspyrnu Arnórs Ingva Traustasonar frá vinstri.

0:3 Óttar Magnús Karlsson 66. tók við boltanum með hælnum og skoraði með skoti af markteig eftir að boltinn hrökk til hans frá Albert.

0:4 Tryggvi Hrafn Haraldsson 69. fékk boltann frá Albert og skoraði einn gegn markverði.

0:5 Hjörtur Hermannsson 79. skallaði í tómt markið frá vítapunkti eftir langt innkast Samúels og skalla Óttars.

0:6 Hólmar Örn Eyjólfsson 81. með skalla úr miðjum vítateig eftir aukaspyrnu Alberts frá vinstri.