Landspítalinn í Fossvogi Talning Kristins Jóns Eysteinssonar benti til að um 655 bílastæði væru við sjúkrahúsið.
Landspítalinn í Fossvogi Talning Kristins Jóns Eysteinssonar benti til að um 655 bílastæði væru við sjúkrahúsið. — Morgunblaðið/Hanna
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Baksvið Baldur Arnarson baldura@mbl.is Vísbendingar eru um að sameining sjúkrahúsa í nýjum Landspítala við Hringbraut kalli á aukna notkun almenningssamgangna. Flytja á megnið af starfsemi sjúkrahússins í Fossvogi í nýjan Landspítala 2023.

Baksvið

Baldur Arnarson

baldura@mbl.is

Vísbendingar eru um að sameining sjúkrahúsa í nýjum Landspítala við Hringbraut kalli á aukna notkun almenningssamgangna. Flytja á megnið af starfsemi sjúkrahússins í Fossvogi í nýjan Landspítala 2023.

Kristinn Jón Eysteinsson, skipulagsfræðingur hjá Reykjavíkurborg, skrifaði meistararitgerð um áhrif nýs Landspítala (NLSH) á ferðamyndun og bílastæðamál. Ritgerðin var lögð fram við Tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík árið 2013 til meistaraprófs í skipulagsfræði og samgöngum.

Kristinn Jón skoðaði þar m.a. mögulega eftirspurn starfsfólks, nemenda og kennara eftir bílastæðum. Þá miðað við áætlaðan heildarfjölda allra ferðamáta sama hóps. Áætlunin tók mið af gildandi deiliskipulagi svæðisins frá 2013.

Lækki um tugi prósenta

„Minnka gæti þurft hlutdeild þeirra sem koma á einkabílum niður í 33-41%,“ skrifaði Kristinn Jón í ritgerð sinni. Hann vísaði svo til skífurita (sjá hægri hluta grafs hér til hliðar) um nauðsynlega skiptingu á ferðavenjum fyrir nýjan Landspítala m.t.t. framboðs bílastæða. Hlutfall ferða á bíl var 33-37% eftir fyrsta áfanga en 37-41% eftir seinni áfanga. Tölurnar sýndu þau markmið „sem stefna þarf að í ferðavenjum fyrir NLSH eftir fyrri og síðari áfanga, með og án framboðs á bílastæðum utan lóðar Landspítalans. Til samanburðar er hlutdeild ferða einkabílsins árið 2011 67% hjá Landspítalanum og 56% hjá Háskóla Íslands. Þess má geta að samkvæmt aðalskipulagi Reykjavíkurborgar 2010-2030 er almennt markmið fyrir hlutdeild ferða á einkabíl 58%. Það má því ljóst vera að miðað við núverandi ferðavenjur er þetta mikil breyting og mikil áskorun fyrir stjórnendur og starfsfólk NLSH í samgöngumálum,“ skrifaði Kristinn Jón.

Skv. minnisblaði spítalans haustið 2014 sýndu „ferðavenjukannanir í nóvember 2011 og mars 2014...að nánast engin breyting varð á ferðavenjum á þessu tímabili“. Fyrirspurn um nýrri tölur var send til spítalans síðdegis í gær. Svar hafði ekki borist um kvöldmatarleytið.

Spurður um fyrrgreint hlutfall bílferða segir Kristinn Jón að aðeins um 40% allra þeirra sem starfa á svæðinu muni geta ferðast þangað með einkabíl á daginn, að undanskildum næturvöktum. „Aðrir þurfa að koma til vinnu á þetta svæði með almenningssamgöngum, gangandi eða hjólandi,“ segir Kristinn Jón.

Þessi áætlun er með tilliti til þarfar þeirra sem sækja þjónustu Landspítalans fyrir bílastæði.

Sjúklingum mun fjölga

Hann bendir á að gert sé ráð fyrir frekari fólksfjölgun næstu áratugi. Jafnframt muni eldra fólki fjölga með hækkandi lífaldri. Því muni sjúklingum að óbreyttu fjölga. Notkun sjúklinga og gesta á bílastæðum geti því mögulega fækkað stæðum til umráða fyrir starfsmenn.

Hann benti í ritgerðinni á að bílastæðastjórnun mundi ráða því hvernig þessi þróun yrði til framtíðar. Á því var þó ekki tekið sérstaklega.

Þá kom þar fram að árið 2015 voru um 2.500 starfsmenn í 1.900 stöðugildum við Hringbraut og Eiríksgötu og 1.280 starfsmenn í 950 stöðugildum í Fossvogi. Ætlað var að alls 3.900 starfsmenn mundu starfa á nýjum Landspítala eftir 1. áfanga.

Samkvæmt talningu Kristins Jóns voru um 655 bílastæði við Landspítalann í Fossvogi. Til samanburðar sé gert ráð fyrir 1.600 stæðum í 1. áfanga spítalans, 400 stæðum með byggingu síðari áfanga og 150 stæðum í randbyggð. Hún tilheyri þó ekki starfsemi nýs Landspítala.

1.600 stæði í 1. áfanga
» Á vef Nýja Landspítalans segir að í drögum að nýju deiliskipulagi sé gert ráð fyrir að í 1. áfanga verði 1.600 bílastæði á lóðinni en að henni fullbyggðri verði þau um 2.000.
» Morgunblaðið sendi fyrirspurn um fjölda stæða í gærmorgun. Svar hafði ekki borist í gærkvöldi en slæmt veður setti strik í reikninginn.