Gleði Guðjón Valur Sigurðsson, Alexander Petersson og Vignir Svavarsson fagna sigri á EM 2006.
Gleði Guðjón Valur Sigurðsson, Alexander Petersson og Vignir Svavarsson fagna sigri á EM 2006. — Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Íslenska landsliðið hefur ekki alltaf riðið feitum hesti frá fyrstu viðureign sinn á Evrópumeistaramóti í handknattleik karla. Í þau níu skipti sem liðið hefur tekið þátt í mótinu hefur það aðeins þrisvar sinnum unnið fyrsta leik í sinn.

Íslenska landsliðið hefur ekki alltaf riðið feitum hesti frá fyrstu viðureign sinn á Evrópumeistaramóti í handknattleik karla. Í þau níu skipti sem liðið hefur tekið þátt í mótinu hefur það aðeins þrisvar sinnum unnið fyrsta leik í sinn. Tvisvar hefur liðið skilið við andstæðinga sína með skiptan hlut í upphafsleik en í fjögur skipti hefur fyrsti leikur mótsins tapast.

Á EM 2000 tapaði Ísland fyrir Svíþjóð, 31:23, í fyrsta leik sem fram fór í Rijeka í Króatíu. Segja má að Íslendingar hafi aldrei séð til sólar í leiknum.

Tveimur árum síðar gerðu Íslendingar og Spánverjar jafntefli, 24:24, í fyrsta leik eftir afdrifarík mistök voru gerð við tímatöku leiksins eftir að leikhlé var tekið nokkrum sekúndum fyrir leikslok. Leikklukkan var of seint sett í gang eftir leikhléið án þess að athugasemdir væru gerðar. Viðbótartíminn nægði Spánverjum til að jafna metin.

Ísland steinlá fyrir heimamönnum í landsliði Slóvena í Celje í fyrsta leik á EM 2004, 34:28, eftir að hafa verið tveimur mörkum yfir snemma í síðari hálfleik.

Fyrsti sigurinn í fyrsta leik kom gegn Serbum/Svartfellingum á EM í Sviss 2006, 36:31, þar sem Guðjón Valur Sigurðsson var markahæstur með 10 mörk. Ólafur Stefánsson rifbeinsbrotnaði í leiknum.

Á EM 2008 steinlá íslenska landsliðið fyrir Svíum, 24:19, í fyrsta leik eftir að hafa verið tíu mörk undir um skeið. Ólafur og Guðjón voru markahæstir með fjögur mörk hvor.

Tveimur árum síðar á EM 2010 gerði Ísland jafntefli við Serba, 29:29, í hörkuleik þar sem Snorra Steini Guðjónssyni brást bogalistinn í vítakasti á síðustu sekúndum.

Ísland tapaði með tveggja marka mun, 31:29, fyrir Króötum í fyrsta leik á EM 2012 í Serbíu.

Á tveimur síðustu Evrópumótum hefur íslenska liðið hafið keppni á leikjum við Norðmenn. Báðir leikirnir unnust, 31:26, í Álaborg á EM 2014 og 26:25 í Katowice í Póllandi fyrir tveimur árum. iben@mbl.is