[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Hljómsveitin September hefur sent frá sér glænýjan smell sem nefnist „Wanting More“. Eyþór Úlfar og Andri Þór kíkja í spjall til Sigga Gunnars á K100 í dag og leyfa hlustendum að heyra lagið.
Hljómsveitin September hefur sent frá sér glænýjan smell sem nefnist „Wanting More“. Eyþór Úlfar og Andri Þór kíkja í spjall til Sigga Gunnars á K100 í dag og leyfa hlustendum að heyra lagið. Strákarnir ætluðu að klára plötu fyrir jól en þeim fannst vanta hressan smell til að fullklára hana. Svo fór að plötuáformin stóðust ekki tímamörk þannig að sú ákvörðun var tekin að senda lagið í Söngvakeppni Sjónvarpsins í ár. Lagið komst inn en illa gekk að finna söngvara til að syngja það svo þeir drógu sig úr keppni. Þeir drifu í því að gefa það út og syngur Eyþór sjálfur lagið.