„Þetta er í raun afleiðing þess að hluti fjárveitinga til Landhelgisgæslu Íslands er gengistryggður, en þannig hefur það verið í mörg ár og er það gert að ósk Landhelgisgæslunnar sjálfrar,“ segir Sigríður Á.

„Þetta er í raun afleiðing þess að hluti fjárveitinga til Landhelgisgæslu Íslands er gengistryggður, en þannig hefur það verið í mörg ár og er það gert að ósk Landhelgisgæslunnar sjálfrar,“ segir Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra í samtali við Morgunblaðið.

Greint var frá því á laugardag að þyrlan TF-SYN yrði hugsanlega leigð í verkefni erlendis í að minnsta kosti tvo mánuði til að loka gati sem myndaðist við „lækkun“ fjárheimilda til Landhelgisgæslunnar í fyrra. Er það tilkomið vegna breyttra gengisforsendna. Eftir fund Gæslunnar með embættismönnum í dómsmálaráðuneytinu er nú hins vegar ljóst að þyrlan verður ekki framleigð, en í staðinn ætti LHG að leita annarra leiða til að auka sértekjur.

Sigríður segir þetta ekki hafa átt að koma Landhelgisgæslunni á óvart og þar á bæ hefðu menn mátt vita í hvað stefndi, en vegna gengisbreytinga lækkaði framlag til þeirra um 61,4 milljónir króna. „Landhelgisgæslunni mátti vera það ljóst, þekkjandi sitt bókhald og stöðu gengismála,“ segir hún. Þá segir hún einnig ljóst að ekki komi til greina að leigja út björgunarþyrlu á sama tíma og önnur er í viðgerð. „Ráðuneytið mun aldrei samþykkja slíkt komi það niður á getu Gæslunnar til björgunar.“