Ástæða er til að fagna þeirri stjórn sem nýverið hefur verið mynduð. Tveir flokkar sem oft hafa eldað grátt silfur saman taka höndum saman við Framsóknarflokk við myndun þessarar stjórnar.

Ástæða er til að fagna þeirri stjórn sem nýverið hefur verið mynduð. Tveir flokkar sem oft hafa eldað grátt silfur saman taka höndum saman við Framsóknarflokk við myndun þessarar stjórnar. VG sýna mikla ábyrgð með því að taka þátt í þessari stjórnarmyndun. Stjórnin er vel skipuð af reyndum einstaklingum að mestu leyti. Hugað verður að innviðum samfélagsins og aukið fjármagn sett í ýmsa málaflokka, þar á meðal í heilbrigðismálin. Ríkisstjórninni og öllum ráðherrum hennar skal óskað velfarnaðar í öllum störfum sínum.

Sigurður Guðjón

Haraldsson.