Guðlaugur Arnarsson
Guðlaugur Arnarsson
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
EM 2018 Ívar Benediktsson iben@mbl.is „Ég er nokkuð ánægður með íslenska liðið til þessa í mótinu.

EM 2018

Ívar Benediktsson

iben@mbl.is „Ég er nokkuð ánægður með íslenska liðið til þessa í mótinu. Ekki síst er gaman að sjá hversu vel menn koma undirbúnir til leiks í báðum viðureignum til þessa,“ sagði Guðlaugur Arnarsson, annar þjálfara karlaliðs Vals í handknattleik, spurður um sýn sína á leiki íslenska landsliðsins til þessa á Evrópumóti karla í handknattleik.

„Leikurinn við Svía var lengst af góður og fyrri hálfleikur gegn Króötum var finn. Við verðum hinsvegar að sætta okkur við að Króatar voru ofjarlar okkar að þessu sinni,“ sagði Guðlaugur ennfremur. Hann vill þó sjá heilsteyptari leik í 60 mínútur. Hins vegar hafi margir kaflar gefið vonir um að lengja megi kaflana sem liðið leikur vel.

Liðið er á réttri leið

„Við verðum að lengja góðu kaflana. Á móti kemur að þá er kannski nauðsynlegt að staldra við fyrr þegar hallar undan fæti, til dæmis með því að breyta varnarleiknum eða skipta um markverði. Það eru atriði sem þarf að vinna með. Því má hinsvegar ekki gleyma að liðið er í mótun og meðan svo er getur gengið á ýmsu. En á meðan góðu kaflarnir lengjast með hverjum leik þá erum við á réttri leið, að mínu mati,“ sagði Guðlaugur sem telur möguleika íslenska liðsins í viðureigninni við Serba í kvöld vera allgóða.

„Nú reynir á íslenska liðið að leika heilsteyptan leik í 60 mínútur. Serbar sýndu gegn Svíum á sunnudaginn að þeir gefast ekki svo auðveldlega upp. Þeir virðast alltaf vera reiðubúnir að koma til baka með gagnárás,“ sagði Guðlaugur og benti á að serbneska liðið hefði oftar en einu sinni minnkað forskot Svía niður í eitt mark.

Leikur upp á líf og dauða

„Ég hræðist það aðeins að takist okkur ekki að hrista Serbana af okkur snemma leiks þá geti þeir orðið okkur erfiðir með áhlaupum sínum í slæmu köflunum, ef þeir verða of langir.

Að þessu sinni verður vondi kaflinn að vera sem allra stystur. Leikurinn í kvöld verður upp á líf og dauða fyrir bæði lið þótt vissulega sé sú staða fyrir hendi að við megum tapa en ná samt að komast áfram. En það er mikilvægt fyrir framhaldið að fara inn í milliriðilinn eftir tvo sigurleiki. Það eflir sjálfstraustið. Þess vegna er sigur á allan hátt nauðsynlegur fyrir okkur í kvöld,“ sagði Guðlaugur Arnarsson, þjálfari karlaliðs Vals í handknattleik.