[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Í Split Kristján Jónsson kris@mbl.is Guðjón Valur Sigurðsson, fyrirliði Íslands, segir landsliðsmennina vera á ágætum stað fyrir leikinn mikilvæga gegn Serbíu í Split á EM í handknattleik í dag en hann hefst klukkan 17.15 að íslenskum tíma.

Í Split

Kristján Jónsson

kris@mbl.is

Guðjón Valur Sigurðsson, fyrirliði Íslands, segir landsliðsmennina vera á ágætum stað fyrir leikinn mikilvæga gegn Serbíu í Split á EM í handknattleik í dag en hann hefst klukkan 17.15 að íslenskum tíma.

Eftir góðan sigur á Svíum en tap fyrir firnasterku liði heimamanna getur Ísland komist áfram í milliriðil með 2 stig ef þeir leggja Serba að velli sem tapað hafa fyrir Króötum og Svíum. Tapi Ísland er hætta á að liðið þurfi að fara heim en þrjú lið fara áfram í milliriðil og eru Króatar og Svíar öruggir áfram en spurning hversu mörg stig þeir taka með sér.

„Við höfum verið að hamra á því og segja sjálfum okkur það í lengri tíma að getan býr í liðinu. Eins og ég sagði við þig eftir fyrsta leikinn þá erum við að taka þessi stuttu skref og eina tröppu í einu. Lið Serbíu er ekki eins sterkt og lið Króatíu en þetta er villtara lið og það gerir þá hættulegri. En nú spilar sú óvissa inn í að um er að ræða úrslitaleik um að fara áfram og með því kemur önnur pressa. Ef maður tapar þá gæti maður verið á leið heim en ef maður vinnur þá bætist við vika í viðbót. Það er það skemmtilega í þessu.“

Ótrúlega gaman og gefandi

„Fyrir okkur sem lifum og hrærumst í íþróttinni þá er það út af svona leikjum sem við erum í þessu. Maður nær ekki alltaf að spila vel, og við eigum okkar misjöfnu leiki, en þetta eru augnablikin sem maður lifir fyrir í íþróttinni. Að fá að taka þátt í einhverju sem skiptir máli. Nú er hópurinn að vinna úr upplýsingum sem fyrir okkur eru lagðar. Hvað við ætlum að gera og hvernig við ætlum að framkvæma það sem lið. Það er ótrúlega gaman og gefandi. Ég er bæði glaður og feginn að við fáum að taka á svið slíkan leik,“ sagði Guðjón þegar Morgunblaðið ræddi við hann á hóteli landsliðsins í gær.

Annað kvöld mætast Króatar og Svíar á eftir Íslendingum og Serbum. Svíar fundu taktinn þegar leið á leikinn gegn Íslendingum og fylgdu því eftir með sigri á Serbum. Telur Guðjón að Svíar geti unnið Króata?

„Það getur allt gerst. Við vitum það að í íþróttum er allt hægt. Auðvitað eru Króatar sigurstranglegri. Ekki spurning.“

Hæfileikaríkir Serbar

Spurður út í serbneska liðið segir Guðjón það tefla fram hæfileikaríkum leikmönnum.

„Við munum mæta vel mönnuðu, hæfileikaríku en frekar villtu liði. Serbneska liðið býður upp á alls kyns útgáfur af leikstíl. Vanalega þegar maður er á vellinum og einhver aðgerð er sett í gang fyrir framan þig sem þú hefur séð á myndbandi þá eru kannski þrír möguleikar í stöðunni. En hjá Serbum geturðu átt von á öllu. Þeir eru duglegir að brjótast út úr hlutum og glöggir að sjá glufur í vörn til að ráðast á frekar en að framkvæma eitthvað fyrir fram ákveðið.

Þegar maður sækir þá getur maður átt von á öllum heimsins afbrigðum af vörn og að skipt sé snöggt á milli varna. Það höfum við í það minnsta séð bæði úr vináttuleikjum og í þessu móti. Þeir eru eiginlega óútreiknanlegir í samanburði við Króatana og Svíana sem gerir það að verkum að við þurfum að vera gríðarlega einbeittir og vakandi allan tímann,“ sagði Guðjón Valur ennfremur.