Boy George hlaut 15 mánaða fangelsi.
Boy George hlaut 15 mánaða fangelsi.
Á þessum degi árið 2009 var breski tónlistarmaðurinn Boy George dæmdur í 15 mánaða fangelsi. Fyrrverandi frontmaður hljómsveitarinnar The Culture Club var sakfelldur fyrir að hafa haldið norskum fylgdarpilti föngnum og barið hann með járnkeðju.
Á þessum degi árið 2009 var breski tónlistarmaðurinn Boy George dæmdur í 15 mánaða fangelsi. Fyrrverandi frontmaður hljómsveitarinnar The Culture Club var sakfelldur fyrir að hafa haldið norskum fylgdarpilti föngnum og barið hann með járnkeðju. Tónlistarmaðurinn hlekkjaði norska fylgdarsveininn Audun Carlsen við vegginn á heimili sínu. Sagði hann sér til varnar að hann hefði gripið til þessa ráðs eftir að grunsemdir vöknuðu hjá honum um að Norðmaðurinn hefði stolið ljósmyndum úr tölvu hans.