Agnes M. Sigurðardóttir
Agnes M. Sigurðardóttir
Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, kveðst afar þakklát öllum þeim sem hafa stigið fram og sagt frá reynslu sinni.

Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, kveðst afar þakklát öllum þeim sem hafa stigið fram og sagt frá reynslu sinni.

„Það er mikilvægt að enginn loki augunum gagnvart þeirri samfélagslegu meinsemd sem kynbundin áreitni og ofbeldi sannarlega er, að því er virðist í öllum kimum samfélagsins,“ segir Agnes í pistli á heimasíðu sinni.

„Frásagnir prestvígðra kvenna komu mér ekki á óvart. Ég hef sjálf starfað innan kirkjunnar í nær 40 ár og bæði upplifað og séð ýmislegt á þeim tíma. Hitt er svo öllum ljóst, að kirkjan hefur um langa hríð reynt að vinna úr áreitnis- og ofbeldismálum þar sem sumt hefur tekist vel en annað síður,“ segir biskup og rifjar upp að fyrir 20 árum hafi kirkjan sett vinnureglur um meðferð áreitnismála sem kynnu að koma upp. Í tengslum við þær sé nú verið að taka upp verklag í viðkvæmum aðstæðum.

„Markmiðið er að tryggja rétta málsmeðferð hverju sinni og styðja við þolendur, t.d. hvetja þá til að kæra mál til lögreglu séu þau þess eðlis og veita hverjum og einum faglegan stuðning, og eftir atvikum einnig gerendum. Í sumum málum er kveðið á um skilyrðislausa tilkynningaskyldu til yfirvalda, frávísun úr starfi – ýmist tímabundna á meðan rannsókn stendur yfir eða varanlega – svo dæmi séu nefnd. Reglurnar hafa reynst vel en þarfnast stöðugrar rýni, ekki síst hvað varðar forvarnir og fræðslu,“ segir biskup.

„Ég tek hjartanlega undir þá sanngjörnu og eðlilegu kröfu sem prestvígðar konur hafa sett fram. Ég mun leggja mig alla fram við að bæta starfsumhverfi kvenna og samskiptin milli fólks í kirkjusamfélaginu.“