Hellisheiði Bruninn í stöðvarhúsinu er enn til rannsóknar.
Hellisheiði Bruninn í stöðvarhúsinu er enn til rannsóknar. — Morgunblaðið/Hanna
Tjón vegna elds sem upp kom í Hellisheiðarvirkjun sl. föstudag er að mestu bundið við inntaksrými loftræsibúnaðar, að því er fram kemur í tilkynningu frá Orku náttúrunnar (ON), dótturfélagi Orkuveitu Reykjavíkur.

Tjón vegna elds sem upp kom í Hellisheiðarvirkjun sl. föstudag er að mestu bundið við inntaksrými loftræsibúnaðar, að því er fram kemur í tilkynningu frá Orku náttúrunnar (ON), dótturfélagi Orkuveitu Reykjavíkur.

Samkvæmt upplýsingum frá ON liggur fjárhagstjón ekki nákvæmlega fyrir. Er tjónið talið minna en óttast var í fyrstu, en geti þó skipt milljónum króna.

Virkjunin skilaði fullum afköstum innan sólarhrings frá því eldurinn kom upp.

Brunahólfun kom í veg fyrir að eldur bærist í loftræsibúnaðinn sjálfan í aðliggjandi rými. „Inntaksrýmið er gróft og fátt búnaðar þar inni. Þannig er gólf rýmisins hellulagt. Beðið verður eftir betri tíð með viðgerð á þaki rýmisins, hugsanlega fram á vor. Þá þarf að kanna hvort eldurinn hefur haft áhrif á burð þakbita,“ segir m.a. í tilkynningunni.

Sýningin opnuð 22. janúar

Lögreglan á Suðurlandi fer með rannsókn á upptökum eldsins. Svartur reykur sem lagði frá eldinum, er rakinn til þakpappa sem brann og einangrunar á nokkrum rafmagns- og stýristrengjum sem liggja um inntaksrýmið.

Jarðhitasýning Orku náttúrunnar, sem rekin er í Hellisheiðarvirkjun, er lokuð vegna viðgerða á gólfi sem skemmdist af slökkvivatni. Stefnt er að því að opna hana að nýju mánudaginn 22. janúar nk.