Athafnafrelsi. V-Allir
Norður | |
♠43 | |
♥D102 | |
♦ÁD | |
♣KD7652 |
Vestur | Austur |
♠ÁG86 | ♠K5 |
♥987 | ♥ÁKG654 |
♦KG1098 | ♦4 |
♣G | ♣10983 |
Suður | |
♠D10972 | |
♥3 | |
♦76532 | |
♣Á4 |
Suður spilar 4♠ doblaða.
Hvernig í dauðanum er hægt að komast í 4♠ á þetta rusl? Von að spurt sé. En byrjum á byrjuninni. Vestur er gjafari og passar, norður opnar á víðáttulaufi og austur – ja, hvað myndi lesandinn gera í sporum austurs?
Bókarsögnin er 1♥ – réttlýsandi innákoma, sem lofar alla vega fimmlit og sæmilegum spilum. Bandaríski ungliðinn Benjamin Kristensen stökk í 3♥. Sú sögn sýnir strangt tekið sjölit og veikari spil, en pass makkers í byrjun gefur austri visst frelsi til að sprikla. Og nú er komið að suðri, sem á svo sem ekki mikinn styrk, en spennandi skiptingu. Hvað á hann að gera við 3♥?
Viðkomandi suður skellti saman skoltum og passaði. Vestur sagði 4♥ – pass, pass og... FJÓRIR spaðar. Og því ekki það? Ef norður á fitt í spaða gæti unnist geim í báðar áttir.
Ekki hér. Dobl og fjórir niður (1100).