Dolores látin Írska söngkonan Dolores O'Riordan á tónleikum með hljómsveitinni The Cranberries 7. júlí 2016.
Dolores látin Írska söngkonan Dolores O'Riordan á tónleikum með hljómsveitinni The Cranberries 7. júlí 2016. — AFP
Dolores O'Riordan, söngkona írsku rokksveitarinnar The Cranberries , lést í gær, 46 ára að aldri. Frá þessu greindi talskona hennar í tilkynningu til fjölmiðla. O'Riordan var í London ásamt öðrum meðlimum sveitarinnar við upptökur.

Dolores O'Riordan, söngkona írsku rokksveitarinnar The Cranberries , lést í gær, 46 ára að aldri. Frá þessu greindi talskona hennar í tilkynningu til fjölmiðla.

O'Riordan var í London ásamt öðrum meðlimum sveitarinnar við upptökur.

Cranberries skaut upp á stjörnuhimininn árið 1993 með plötunni Everybody Else Is Doing It, So Why Can't We? Hljómsveitin hefur selt yfir 40 milljónir platna.

Dánarorsök O'Riordan hefur ekki verið gefin upp, en hljómsveitin varð að aflýsa fjölda tónleika í Evrópuferð sinni í maí síðastliðnum vegna slæmrar heilsu söngkonunnar. Hún greindi síðan frá því á facebooksíðu sveitarinnar í síðasta mánuði að hún hefði náð heilsu og væri farin að koma fram að nýju.