Framkvæmdastjóri Kristján Þór.
Framkvæmdastjóri Kristján Þór.
Mér finnst virkilega gaman að sjá þessa ungu stráka sem eru að koma inn í hópinn,“ segir Kristján Þór Gunnarsson framkvæmdastjóri um íslenska handboltalandsliðið sem er að keppa á EM.

Mér finnst virkilega gaman að sjá þessa ungu stráka sem eru að koma inn í hópinn,“ segir Kristján Þór Gunnarsson framkvæmdastjóri um íslenska handboltalandsliðið sem er að keppa á EM. Kristján, sem fagnar 60 ára afmæli sínu í dag, keppti lengi fyrir HK í handbolta eða fram á fertugsaldurinn. Hann spilaði einnig fótbolta í yngri flokkunum og varð margoft Íslandsmeistari með Breiðabliki og einnig í handbolta.

Hann stefnir á að fara á HM í fótbolta í Rússlandi næsta sumar. „Ég er ákveðinn í að láta á það reyna, það væri gaman að sjá fyrsta leikinn, gegn Argentínu, en draumurinn er að sjá einhvern leik úti. Það sem er mér minnisstæðast í íþróttunum er að hafa séð fyrsta leik Íslands á stórmóti, þegar ég sá þá spila við Portúgal á EM 2016, og ég fór þá tvær ferðir út. Ég hef einnig tvisvar farið á HM. Eiginkona mín gaf mér tvo miða í fertugsafmælisgjöf á opnunarleikinn á HM í Frakklandi árið 1998 og sá ég með syni mínum Brasilíu vinna Skotland. Það var ógleymanlegt þegar við vorum undir Eiffelturninum með Skotunum máluðum í skotapilsunum og manni fannst þetta vera það næsta sem kæmist Íslandi. Ekki datt mér í hug að við Íslendingar myndum spila sjálfir á HM, tuttugu árum síðar.

Seinna skiptið sem ég sá leik á HM var undanúrslitaleikurinn árið 2006 á Arena-leikvanginum í München. Þá sáum við dóttir mín Zidane skora sigurmark Frakka úr vítaspyrnu gegn Portúgölum. Við sátum fyrir aftan markið og leikvangurinn var svo brattur að okkur fannst við geta snert skallann á Zidane.“

Auk íþrótta hefur Kristján áhuga á veiði og kirkjustarfi, en hann starfar í ýmsum hópum innan kirkjunnar og er með vikulegan spjallþátt á útvarpsstöðinni Lindinni: „Létt spjall með Krissa“. „Velferð fjölskyldunnar er númer eitt. Hún kemur í heimsókn til mín í kvöld og við ætlum að fá okkur að borða saman. Ég hélt upp á 30 ára, 40 ára og 50 ára afmælið en ætla ekki að halda formlega upp á það núna. Svo erum við fjölskyldan að fara öll saman til Tenerife í lok mars og verðum þar í ellefu daga.“

Kristján er framkvæmdastjóri fiskútflutningsfyrirtækisins SIAL, og flytur fisk út til Ameríku, undir merkjum Thorfish, sem kemur frá útgerðarfyrirtækinu Þorbirni. „Þetta er sjófrystur fiskur, þorskur, ýsa og ufsi og er hágæðavara. Íslenskur fiskur veiddur innan 200 mílna landhelgi í einum ómengaðasta sjó í heimi og er með vottunarmerkið ISF, Icelandic Sustainable Fisheries. Er hægt að hugsa sér hollari vöru en það? Við fjölskyldan fórum út að borða eitt sinn á veitingastað þar sem Þorbjarnarufsi var uppi á borðum og það var gaman að því að labba inn á veitingastað þar sem maður fékk sér fisk sem maður flutti út sjálfur.“ Kristján hefur rekið þetta fyrirtæki ásamt konu sinni í tólf ár, en hann var umsvifameiri á árum áður og rak fyrirtækið Fisco en seldi það árið 2004.

Eiginkona Kristjáns er Guðrún Hulda Birgisdóttir, formaður sóknarnefndar Hjallakirkju og situr í héraðsnefnd. Börnin þeirra eru Helga, Sindri Þór, Aldís Eva og Karen Eva og barnabörnin eru átta.