Eiríkur Björn Björgvinsson
Eiríkur Björn Björgvinsson — Ómerkt
Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri á Akureyri, ætlar ekki að sækjast eftir embættinu áfram að loknum bæjarstjórnarkosningum.
Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri á Akureyri, ætlar ekki að sækjast eftir embættinu áfram að loknum bæjarstjórnarkosningum. Hann hefur setið á stóli bæjarstjóra frá 2002; fyrst tvö kjörtímabil á Egilsstöðum og tíminn á Akureyri verður orðinn jafnlangur þegar kosið verður í vor. Var ráðinn nyrðra 2010 þegar Listi fólksins náði meirihluta í bæjarstjórn. „Þetta er orðinn ágætur tími, krefjandi starf en mjög skemmtilegt,“ sagði Eiríkur í gær. „Ég held öllu opnu varðandi framhaldið og veit að reynsla mín og þekking nýtist áfram til góðra verka hvar sem það verður.“