Þórey Jónsdóttir
Þórey Jónsdóttir
Airport Associates er flugþjónustufyrirtæki sem þjónustar flugfélög sem fljúga til og frá Keflavíkurflugvelli. Meðal viðskiptavina eru WOW air, British Airways, easyJet, Norwegian, Wizz Air og Delta Airlines.

Þórey Jónsdóttir er mannauðsstjóri Airport Associates á Íslandi. Hún segir aðspurð áformað að fjölga starfsfólki töluvert í ár vegna aukinna umsvifa, líkt og undanfarin ár.

„Við erum með tæplega 500 starfsmenn í dag. Við förum svo að bæta vel í frá aprílmánuði og verðum í sumar með um 650 starfsmenn. Í lok árs reikna ég með að við verðum með 550-600 starfsmenn,“ segir Þórey.

Spurð hvernig gangi að finna húsnæði fyrir starfsfólkið segir hún fyrirtækið bjóða erlendu starfsfólki húsnæði á Ásbrú.

„Við erum þar með fjórar blokkir sem rúma tæplega 300 manns. Það hefur verið húsnæðisskortur á svæðinu. Það hefur takmarkað aðeins hversu marga starfsmönnum við getum tekið á móti frá útlöndum. En erfitt hefur verið að manna allar stöður yfir sumarið eingöngu með Íslendingum,“ segir Þórey.

Hún segist aðspurð gera ráð fyrir að í árslok verði álíka hlutfall starfsfólks hjá fyrirtækinu erlent og nú, eða um helmingur.