Berghreinn Guðni Þorsteinsson fæddist á Siglufirði 17. febrúar 1936. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ 1. janúar 2018.

Foreldrar hans voru Þorsteinn Bergmann Loftsson garðyrkjubóndi, f. 17. febrúar 1911, d. 20. maí 1946, og Vilhelmína Theodora Tijmstra Loftsson, náttúrufræðingur og húsfreyja, f. 26. janúar 1912 á eyjunni Jövu í Austur-Indíum, d. 28. október 1998.

Albræður hans voru: Geirharður Jakob, f. 1934, d. 2017, maki Guðný Helgadóttir leikkona, f. 1938. Þau eignuðust fjögur börn. Vilhjálmur Þorsteinn, f. 1943, d. 2016. Maki 1: Harpa Möller, þau áttu þrjú börn. Maki 2: Stefanía Júlíusdóttir bókasafns- og upplýsingafræðingur, f. 1944. Hún átti fyrir tvær dætur af fyrra hjónabandi og eru þær kjördætur Vilhjálms. Hálfbróðir Berghreins er Helgi Skúta listfræðingur, f. 1953. Með Önnu S. Gunnarsdóttur átti hann son en maki Helga er Sharon Helgason Gallagher, heimspekingur og útgefandi, f. 1959, þau eiga dóttur.

Eiginkona Berghreins er Randý Sigurðardóttir, f. 2. apríl 1940. Átti hún fyrir Sigurð Rafn Þorgeirsson, sem fæddist 26. september 1959, og gekk hann honum í föðurstað. Sigurður eignaðist fimm börn. Þau eru Hildur Þóra (fósturdóttir), f. 1979, og Kristín Lilja, f. 1982, móðir þeirra er Súsanna Friðriksdóttir. Guðrún Randý, f. 1986, og Sara Björg, f. 1987, móðir þeirra er Ellý Vilhjálmsdóttir, og Daníel Pitsuk, f. 2005, móðir hans er Svetlana Pitsuk. Maki Hildar Þóru er Halldór Gunnlaugsson og maki Kristínar Lilju er Karl Á. Ágústsson. Berghreinn á sex barnabarnabörn.

Saman eignuðust Randý og Berghreinn fjögur börn. Þau eru: 1) Vilhjálmur, f. 20. apríl 1962. 2) Bryndís Ósk nuddari, f. 25. október 1963. Sambýlismaður hennar er Ásberg Pétursson. Börn Bryndísar eru Birkir Freyr, f. 1987, og Theodóra Listalín, f. 1995, faðir þeirra er Þröstur Sverrisson. 3) Berglind, f. 28. ágúst 1965. Börn Berglindar eru Fannar Örn, f. 1996, og Guðný María, f. 1999, faðir þeirra er Torfi Arnarson. 4) Þorsteinn Guðni, mannfræðingur og sérkennari, f. 18. mars 1972. Börn Þorsteins Guðna eru Signý, f. 2005, og Hugrún, f. 2007. Móðir þeirra er Vigdís Einarsdóttir.

Berghreinn stundaði um tíma nám við Bændaskólann á Hólum. Áhuginn beindist hins vegar að flugvirkjun og fór hann þaðan í nám í Spartan School of Aeronautics í Ameríku. Eftir að hann lauk þar námi hóf hann flugvirkjastörf í janúar 1958 hjá Flugfélagi Íslands. Þá var hann einnig með vélstjóraréttindi og einkaflugmannsréttindi. Hinn 2. maí 1961 var Berghreinn ráðinn til Landhelgisgæslu Íslands (LHG). Þar varð hann fyrsti flugvirki á Íslandi sem öðlaðist réttindi til að viðhalda þyrlum. Það var á Bell 47 sem var fyrsta þyrlan sem Landhelgisgæslan tók til notkunar árið 1965 og bar hún nafnið TF-EIR. Öðlaðist hann jafnframt réttindi á þær þyrlur sem Landhelgisgæslan keypti á þeim 42 árum sem hann starfaði þar. Hann var einnig flugvélstjóri á fyrstu flugvél gæslunnar, var spilmaður í þyrluáhöfn, var yfirflugvirki, gæðastjóri og starfaði svo við skráningu og áætlunargerð síðustu árin. Auk þess fólst í hans starfi að fara á fjölda námskeiða erlendis, til að læra á allar nýjar þyrlur LHG, fara í vitatúra og auk þess voru björgunarstörf hluti af hans vinnu. Þá kenndi hann ungum mönnum sem þar unnu, í lengri eða skemmri tíma, og hlúði að þeim.

Berghreinn og Randý bjuggu alltaf í Reykjavík.

Berghreinn var jarðaður í kyrrþey að eigin ósk.

Að finna ást á ferðalögum

við fjöll og dali, sand og hraun,

að leggja upp frá heimahögum

og hljóta síðan lífsins laun,

að eyða saman ævidögum

er yndisleg og falleg raun.

Víst leynast skin og skúrir víða,

þú skynjar fagurt ævikvöld,

þú hefur fundið faðminn blíða

á ferð í rúma hálfa öld

og sérð að lífsins laun þín bíða

er læðist að þér nóttin köld.

Þú kveður ást sem öllu breytti,

og alltaf vildi bæta hag,

sú trausta sál sem töfrum beitti

fékk tár þín þerrað nótt og dag.

Þú veist að ykkur unað veitti

hið yndislega ferðalag.

(Kristján Hreinsson)

Elsku hjartans Hreinn.

Takk fyrir allt og allt.

Góða ferð inn í Sumarlandið.

Þín eiginkona,

Randý.

Þegar ég hugsa um pabba minn kemur margt upp í hugann.

Pabbi var jafnlyndur, réttsýnn, sanngjarn, hlédrægur, blíður, ljúfur og hlýr og hann hafði góða kímnigáfu og gerði oft að gamni sínu, sérstaklega orðaleiki og slíkt. Honum var mjög illa við að fólk væri að sletta á ensku og slíkt, hann sagði okkur börnunum það reglulega. Hann væri á Íslandi og vildi að fólk heilsaði með halló og bless, og allt í lagi, en ekki „hæ“, „bæ“ og „ok“.

Það þurfti mikið til að fá hann til að skipta skapi, og þá var það helst ranglæti sem honum mislíkaði.

Honum var ekkert um fínheit, leiddust spariföt og óþarfa umstang og slíkt en naut sín best með fólkinu sínu eða einhvers staðar á hreyfingu, helst í vinnugalla, að smyrja hjól eða bóna.

Hann vann mikið, en þegar hann var heima vildi hann hafa eitthvað fyrir stafni. Hann hjálpaði mér oft að setja saman húsgögn og fleira. Pabbi var mikill íþróttamaður, hann hljóp, hjólaði, fór á skíði og fleira.

Þegar mikið fjölmenni var í Bláfjöllum kaus hann heldur að fara á gönguskíði en svigskíði, þar sem hann vildi ekki bíða í röðinni í lyfturnar, hins vegar í lok dags fór hann, þegar fólki fækkaði á svæðinu, oft nokkrar ferðir í brekkurnar. Í þessar skíðaferðir fóru einhver af börnunum iðulega með og þegar komið var heim eftir langan dag beið mamma með heitan góðan mat. Sama átti við um hjólaferðir og hlaup, til dæmis Flóahlaup, þá fór mamma með og keyrði á eftir og tók á móti pabba í markinu.

Hann hjólaði sem oftast í vinnuna, úr Dalselinu í flugskýlið við Nauthólsvík, og eftir því var tekið. Hann fékk mig meira að segja með í gönguferð úr Dalseli alla leið á Laugarnesveginn og spjallaði við mig allan tímann.

Í hópinn bættist hún Skotta, en pabbi sinnti hennar útivist mest. Pabbi var augljóslega húsbóndi hennar og hún hlýddi honum! Hún var dálæti allra í fjölskyldunni og hennar var alltaf sárt saknað.

Pabbi og mamma ferðuðust töluvert saman og til að koma til móts við ólíkar óskir hvort annars var farið til skiptis í skíðaferðir og til sólarlanda.

Pabbi tók mikið af ljósmyndum og kvikmyndum og þar eru dýrmætar minningar fyrir okkur hin. Hann kom mér af stað með að taka myndir og það er mér dýrmætt því þótt tæknin hafi tekið gríðarlegum breytingum þá er til mikið magn af minningum og um leið tækifærum til að nýta öðrum til góðs og það er það sem ég vil heiðra pabba minn með.

Ég vil, elsku pabbi minn, heiðra minningu þína með því að hjálpa öðrum í svipaðri stöðu að skapa minningar og gefa öðrum tækifæri til að vinna með minnkandi getu til daglegs lífs og auka lífsgæði þeirra.

Það er svo mikill fjöldi fólks sem hefur engan stuðning og vantar hjálp til að vinna með þennan hræðilega sjúkdóm. Og þegar getan til tjáningar og verks minnkar og hverfur er svo mikilvægt að reyna að opna fleiri leiðir, reyna að finna annan farveg til að geta haft samskipti áfram.

Þetta er það sem ég vil gera, pabbi minn, og þannig nýta sorgina og söknuðinn (því kökkurinn er fastur í hálsinum og tárin leka endalaust) til að gera öðrum í þörf fyrir hjálp gagn.

Takk fyrir allt, elsku pabbi minn, elska þig endalaust.

Þín

Berglind (Begga).

Pabbi var á margan hátt mjög óvenjulegur.

Sumir foreldrar vilja vera ekki of góðir vinir barna sinna: það dragi úr virðingu barnanna. Í mínu tilfelli virti pabbi þessa reglu ekki enda er að mínu mati virðing eitthvað sem er áunnið. Þar hafði pabbi að mínu mati ótvírætt forskot á yfirleitt alla aðra sem ég þekkti. Hann lifði lífinu eins og honum fannst það best, óaðfinnanlega heilbrigt líferni þar sem hann var sífellt upptekinn við að hjálpa öðrum eða gera við eitthvað. Alltaf þegar hann hafði tíma til fór hann að leika sér við það sem honum fannst skemmtilegast, fara að hlaupa, hjóla eða á skíði. Í íþróttum og útivist naut hann sín best. Hann átti auðvelt með að fá okkur krakkana með sér.

Fyrir hans tilstilli fór ég að fikta við skíðaiðkun og hjólreiðar sem síðar leiddi til þess að við fórum í ófáa hjólreiðatúra – ýmist einir sér eða í félagsskap annarra. Við fórum jafnvel að taka þátt í hjólreiðakeppnum, ég af meiri alvöru en hann. Hann lýsti því alltaf yfir að hann væri bara að fylla upp í töluna: síðasti keppandinn væri þá sáttur við sinn hlut. Þó var það skilyrði á hans þátttöku að við mættum ekki yfirgefa svæðið fyrr en hann kæmi í mark.

Þegar hann var lagður inn vegna veikindanna keypti ég spjaldtölvu. Hana fyllti ég af náttúrulífsmyndum og sérvöldum íþróttamyndum handa honum. Þannig virtist hann fá einhverja útrás fyrir þörfina fyrir íþróttirnar. Þar sem hann hafði alltaf haft mjög gaman af ljósmyndun fengu náttúruljósmyndir að fljóta með.

Það voru ógleymanlegir klukkutímarnir sem hann gleymdi sér við að horfa á þetta efni aftur og aftur. Best naut ég þess að fylgjast með innlifun hans. Þegar sem mest var farið að draga af honum hagræddi ég efninu þannig að hann sæi það í nógu litlum skömmtum til að þreytast ekki um of en fá samt að njóta þess til hins ýtrasta.

Vissulega tók þetta tíma en ég sá ekki eftir einni mínútu af honum. Ég vissi sem var að þetta voru forréttindi, ekki kemur öllum feðgum jafn vel saman og okkur pabba. Þrátt fyrir að allar venjulegar hömlur væru farnar var hann áfram sama ljúfmennið. Þegar ég kvaddi hann gat ég ekki varist að hlakka til næstu heimsóknar.

Betri föðurímynd er vandfundin. Mikið á ég eftir að sakna þessa tíma.

Vilhjálmur Berghreinsson. mbl.is/minningar

Sérhvert upphaf nýs árs mun héðan í frá, óhjákvæmilega, vekja upp sterka minningu um pabba og öll þau góðu gildi sem hann stóð fyrir. Hann andaðist að morgni nýársdags aðframkominn eftir áralanga sligandi samfylgd alzheimers sem miskunnarlaust yfirtók alla starfsemi hægum skrefum. Það sækir á mann ónotaleg vanmáttarkennd við tilhugsunina um það hvernig maður eins og pabbi, sem dag hvern ræktaði heilsu sína af alúð, svona ótrúlega sanngjarn og gegnheill maður, skyldi á tiltölulega skömmum tíma tapa heilsunni, í hugarþoku.

Í minningunni leiftra samt ótal myndir af einstaklega góðri manneskju sem alla tíð lagði sig fram af miklum heilindum um að reynast fjölskyldu sinni og öðrum samferðamönnum vel. Pabbi var glettinn og hafði sérstaka ánægju af orðaleikjum og útúrsnúningum og gat lengi hlegið að góðum brandara. Hann var líka hreystimenni og okkur börnunum mikil fyrirmynd í lífsstíl og hollum lífsháttum. Aðspurður hvers vegna hann tæki ekki þátt í skemmtanalífinu af sama krafti og aðrir, svaraði hann einatt: „Ég er áhugamaður um vellíðan.“

Hann hafði einfaldan smekk og var látlaus í orðum og æði. Á sama tíma var hann óttalegur dellukarl og bjó að ríkum sjóði áhugamála sem spönnuðu vítt svið, allt frá ljósmyndun yfir í kajakróður með tíðum skíðaferðum upp í Bláfjöll og hjólatúrum í nágrenni Reykjavíkur. Pabbi fór oftast sínar eigin leiðir og var lítið fyrir það að sýnast. Yfirborðsmennska, einkennisföt og glysgirni áttu ekki upp á pallborðið hjá honum.

Hann var nærgætinn en líka afar réttsýnn og átti erfitt með að umbera óheiðarleika í fari fólks. Hann stundaði af þeim sökum frekar einstaklingsíþróttir en hópíþróttir og hafði óbeit á stjórnmálum. Pabbi hafði einfaldar en skýrar lífsskoðanir. Hann var jarðbundinn og aðhylltist hvorki háleita heimspeki né sérstakar trúarskoðanir. Sjálfur sagðist pabbi einfaldlega vera „skynsemistrúar“. Hann gat verið hlédrægur, steig varlega til jarðar í allri ákvarðanatöku og var akkerið í samvinnu hans og mömmu (sem bjó í staðinn yfir meiri félagslegum drifkrafti).

Saman bættu þau hvort annað upp svo eftir var tekið og báru virðingu fyrir þörfum hvort annars. Pabbi var alla tíð mikill dugnaðarforkur. Það var því þeim mun sársaukafyllra að horfa upp á hann, klettinn í fjölskyldunni, veikjast smátt og smátt og fylgjast með hvernig kvarnaðist upp úr sjálfsmyndinni þegar hann hætti að ráða við venjubundin verkefni. Við fórum, eftir því sem veikindin ágerðust, að hlífa honum við reddingum svo að hann upplifði ekki hugarvíl af óvissu og ráðaleysi.

Þrátt fyrir allt hélt hann blessunarlega áfram að vera gamli góði pabbi; vinnusamur, rólyndur og notalegur. Það var alltaf undarlega mikill friður yfir honum síðustu æviárin. Það var nánast eins og hann fyndi fyrir nýju jafnvægi, án orða. Þannig ferðaðist hann á endanum, yfirvegað, yfir í nýjan heim á nýársdag.

Ég er þakklátur. Ég þakka fyrir að hafa átt góðan pabba. Ég þakka fyrir að hafa haft hann svona lengi með mér og ég er feginn því að hann þjáðist ekki mikið undir það síðasta. Ég er líka þakklátur fyrir tækifærin sem ég fæ á hverju nýju ári héðan í frá til að endurnýja stolt mitt yfir að fá að bera einstakt föðurnafn. Berghreinsson.

Takk fyrir pabbi. Takk fyrir allt.

Þorsteinn Guðni

Berghreinsson.

mbl.is/minningar