[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Orðrómur er um að hinir vinsælu Jonas Brothers séu að sameinast á ný eftir að instagramreikningur þeirra var gerður virkur á dögunum. Bræðurnir Paul Kevin II, Joseph Adam og Nicholas Jerry Jonas stofnuðu popp- og rokkgrúppuna Jonas Brothers árið 2005.

Orðrómur er um að hinir vinsælu Jonas Brothers séu að sameinast á ný eftir að instagramreikningur þeirra var gerður virkur á dögunum.

Bræðurnir Paul Kevin II, Joseph Adam og Nicholas Jerry Jonas stofnuðu popp- og rokkgrúppuna Jonas Brothers árið 2005.

Vinsældir þeirra urðu gríðarlegar eftir að þeir birtust á Disney-sjónvarpsstöðinni en síðar slitu þeir samstarfinu og fóru hver í sína áttina og gerðu það misgott í tónlistinni einir og sér.

Bræðurnir hafa ekki staðfest neitt en helltu olíu á eldinn varðandi orðróminn þegar þeir deildu mynd af sér og skrifuðu við hana „Fjölskylduendurfundir“.