Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Vísbendingar eru um að innviðir Suðurnesja séu komnir að þolmörkum. Það kann að hamla vexti ferðaþjónustunnar á næstu árum.
Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, segir farið að bera á óánægju meðal flugafgreiðslufyrirtækja. Ástæðan er að hægt gengur að finna lausnir á húsnæðisvanda sveitarfélagsins.
„Stórir verktakar eru að leita að stað fyrir vinnubúðir fyrir hundruð erlendra verkamanna á suðvesturhorninu. Þetta er stórmál sem við erum því miður ekki búin að leysa,“ segir Kjartan Már.
Hann segir sveitarfélagið naumlega ráða við gríðarlega fjölgun íbúa. Mikið reyni á innviðina. Ríkið þurfi að leggja fram meira fé, m.a. vegna nýrra erlendra ríkisborgara. Skólarnir eru undir miklu álagi.
Samkvæmt útreikningum Vinnumálastofnunar var 2,9% atvinnuleysi suður með sjó í desember. Framundan er stækkun Keflavíkurflugvallar og mikil uppbygging í kringum völlinn. Flugstöðin er orðin of lítil.
Hlynur Sigurðsson, framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Keflavíkurflugvallar, segir stefnt að því að hefja úthlutun lóða í lok ársins. Bæði sé flugvöllurinn orðinn of lítill og þjónustufyrirtækin búin að sprengja af sér húsnæðið. Erfitt sé orðið að finna húsnæði í kringum völlinn.
650 í vinnu hjá AA
Þórey Jónsdóttir, mannauðsstjóri hjá Airport Associates (AA), segir húsnæðisskort hafa takmarkað þann fjölda erlendra starfsmanna sem fyrirtækið getur tekið á móti erlendis frá. Áætlað sé að 650 manns muni starfa hjá fyrirtækinu á vellinum í sumar.Farið að hamla vexti... 4