Þekktur Petr Kopl er einn þekktasti myndasöguhöfundur Tékklands.
Þekktur Petr Kopl er einn þekktasti myndasöguhöfundur Tékklands.
Sýning á verkum Petr Kopl, eins þekktasta myndasöguhöfundar Tékklands, verður opnuð á morgun kl. 14 í Borgarbókasafninu í Gerðubergi.

Sýning á verkum Petr Kopl, eins þekktasta myndasöguhöfundar Tékklands, verður opnuð á morgun kl. 14 í Borgarbókasafninu í Gerðubergi. Á henni má sjá úrval myndasagna og myndskreytinga eftir Kopl sem er í tilkynningu sagður afkastamikill teiknari sem starfi auk þess við grafíska hönnun, blaðamennsku, handritaskrif og leiklist.

Kopl hefur hlotið fjölda verðlauna fyrir útgáfur sínar á myndasögum eftir þekktum bókmenntaverkum og má af þeim nefna Skytturnar þrjár, Baskerville-hundinn, Drakúla greifa, Artúr konung og sögur af Sherlock Holmes.

Hann hefur einnig myndskreytt fjölda barnabóka, m.a. bókaflokkinn The Magical Atlas of Journeys Through Time eftir rithöfundinn Veroniku Válková sem kom hingað til lands í fyrra og las upp úr verkum sínum fyrir gesti Borgarbókasafnsins.