Áslaug Fagnaði 100 ára afmæli sínu í gær með veislu í Lönguhlíð. Hún gat ekki gefið sér tíma í viðtal enda önnum kafin á afmælisdaginn.
Áslaug Fagnaði 100 ára afmæli sínu í gær með veislu í Lönguhlíð. Hún gat ekki gefið sér tíma í viðtal enda önnum kafin á afmælisdaginn.
Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is Áslaug Helgadóttir, fyrrverandi hárgreiðslukona og húsmóðir, hélt í gær upp á 100 ára afmæli sitt, en Áslaug er talin fyrsta íslenska hárgreiðslukonan sem nær hundrað ára aldri.

Aron Þórður Albertsson

aronthordur@mbl.is

Áslaug Helgadóttir, fyrrverandi hárgreiðslukona og húsmóðir, hélt í gær upp á 100 ára afmæli sitt, en Áslaug er talin fyrsta íslenska hárgreiðslukonan sem nær hundrað ára aldri. Áslaug lauk sveinsprófi í hárgreiðslu fyrir um 80 árum og starfaði við það allt þar til hún eignaðist sitt fyrsta barn með eiginmanni sínum Bjarna Valdimarssyni, verslunarmanni. Saman eignuðust þau þrjú börn en Bjarni lést árið 1976. Sjálf gat Áslaug ekki gefið sér tíma til að ræða við Morgunblaðið, enda önnum kafin á afmælisdaginn. Það kom því í hlut Ingigerðar Bjarnadóttur, dóttur Áslaugar, að svara spurningum blaðamanns.

Ingigerður segir að þrátt fyrir háan aldur sé móðir hennar við góða heilsu og hún hafi verið dugleg að halda sér við. „Sjónin og líkamlegur styrkur hefur versnað með aldrinum en fyrir utan það er hún alveg eldhress. Ég er orðin 58 ára en er ennþá að leita til hennar þegar mig vantar upplýsingar sem ég er búin að steingleyma. Það breytist ekkert með aldrinum enda er hún með algjöran límheila,“ segir Ingigerður og bætir við að langlífi sé ekki óalgengt innan fjölskyldunnar. Bróðir Áslaugar, Ingólfur Helgason, varð 98 ára auk þess sem Sigrún Helgadóttir, systir Áslaugar, varð 94 ára gömul.

Í tilefni dagsins bauð Áslaug börnum, barnabörnum og systkinabörnum til veislu í Lönguhlíð í gær, en hún hefur verið búsett í þjónustuíbúð í Lönguhlíð undanfarin ár. Þar stendur henni til boða heitur hádegismatur og þrif á tveggja vikna fresti. Ingigerður segir að þess utan sjái móðir hennar nær alfarið um sig sjálf.

Hreyfir sig nær daglega

„Hún klæðir sig hjálparlaust þegar hún vaknar og eldar sér síðan hafragraut líkt og hún hefur gert alla tíð síðan ég man eftir mér. Ásamt þessu hreyfir hún sig nær daglega með því að fara í göngutúra innandyra á veturna og svo úti á sumrin,“ segir Ingigerður og bætir við að frítími Áslaugar sé að mestu nýttur í að hlusta á bækur og fylgjast með fréttum.

„Hún er farin að sjá aðeins verr og getur því ekki lesið allar bækur en hún hlustar á bækur á hverjum degi. Hún hefur verið áskrifandi að Morgunblaðinu í tugi ára og fylgist því afar vel með, enda er hún með sterkar skoðanir á öllu sem fram fer í samfélaginu,“ segir Ingigerður.