Vísitala byggingakostnaðar, reiknuð um miðjan mánuðinn, hækkaði um 0,4% frá fyrri mánuði . Á síðustu tólf mánuðum hefur vísitalan hækkað um 5,1%. Á síðustu tólf mánuðum nemur mesta mánaðarhækkunin 1,5% og mældist hún í september síðastliðnum.
Vísitala byggingakostnaðar, reiknuð um miðjan mánuðinn, hækkaði um 0,4% frá fyrri mánuði . Á síðustu tólf mánuðum hefur vísitalan hækkað um 5,1%. Á síðustu tólf mánuðum nemur mesta mánaðarhækkunin 1,5% og mældist hún í september síðastliðnum. Vísitalan hefur aðeins einu sinni lækkað á síðustu tólf mánuðum en það var í mars á síðasta ári. Þá lækkaði hún um 0,2%. Að þessu sinni voru það innlend efni sem hækkuðu vísitöluna að langmestu leyti en þau hækkuðu um 0,8% frá fyrra mánuði.