Ofurmódelið Cindy Crawford styður son sinn sem þessa dagana gengur tískupallana í París!
Cindy flaug til Frakklands til að horfa á 18 ára gamlan son sinn hann Presley Gerber ganga á tískusýningu fyrir tískurisann Balmain á Men Paris Fashion Week 2018. Cindy sat fremst við sviðið og horfði með stolti á frumburðinn ganga í svörtum og hvítum kjólfötum.
Auðvitað deildi hún þessu augnabliki með fylgjendum sínum á Instagram og Twitter.
Men's Paris Fashion Week 2018 hófst á miðvikudaginn í síðustu viku og lauk í gær, sunnudaginn 21. janúar.