Tveir ferðamenn voru fluttir á slysadeild á Akureyri í gær eftir að bíll þeirra valt út í Norðurá í Skagafirði. Að sögn lögreglunnar á Sauðárkróki eru þeir ekki alvarlega slasaðir.
Tveir ferðamenn voru fluttir á slysadeild á Akureyri í gær eftir að bíll þeirra valt út í Norðurá í Skagafirði. Að sögn lögreglunnar á Sauðárkróki eru þeir ekki alvarlega slasaðir. Ferðamennirnir fengu að bíða í bíl annarra vegfarenda eftir lögreglu, en voru þó kaldir og hraktir eftir óhappið.