Geysir Deilur hafa staðið yfir á milli landeigenda um verðmat og fleira.
Geysir Deilur hafa staðið yfir á milli landeigenda um verðmat og fleira. — Morgunblaðið/Golli
Agnes Bragadóttir agnes@mbl.

Agnes Bragadóttir

agnes@mbl.is

Ríkissjóður hefur farið fram á að unnið verði yfirmat á verðmæti lands á Geysissvæðinu sem ríkið keypti af sameigendum sínum í október 2016 fyrir liðlega 1,1 milljarð króna, en matið verður bindandi fyrir báða aðila kaupsamningsins. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra kynnti þessa ákvörðun á ríkisstjórnarfundi sl. föstudag.

Í frétt frá fjármálaráðuneytinu kemur fram að forsaga málsins er að 7. október 2016 keypti ríkið eignarhlut sameigenda sinna á Geysissvæðinu. Svæðið sem keypt var umlykur séreignarland ríkisins innan girðingar þar sem hverirnir Geysir og Strokkur eru. Eignarhlutur ríkisins í sameignarlandinu fyrir kaupin var 25,28% en sameigenda 74,72%.

Metið á 1,1 milljarð króna

„Þar sem ekki náðist samkomulag um verðmæti hins keypta eignarhluta var ákveðið að dómkvöddum matsmönnum yrði falið að úrskurða um kaupverð sameignarlandsins...

Hinir dómkvöddu matsmenn skiluðu matsgerð sinni 1. desember sl. Matsmenn lögðu til grundvallar í niðurstöðu sinni að ekki væri annað fært en að miða verðmæti landsins út frá því að hægt yrði að innheimta aðgangseyri að svæðinu. Markaðsverð landsins er því fundið út frá þessum forsendum.

Miðað við þær forsendur sem matsmenn gáfu sér er kaupverð spildunnar að frádregnum hlut ríkissjóðs í sameignarspildunni metið á 1.113 m.kr. sem væri sú fjárhæð sem greiða þyrfti sameigendum samkvæmt kaupsamningi,“ segir m.a. í frétt fjármálaráðuneytisins. Það var því mat ríkisins að ekki væri forsvaranlegt annað en að óska eftir fimm manna yfirmati á verðmæti landsins sem báðum samningsaðilum sé heimilt að gera.

Niðurstaða yfirmatsins verði bindandi fyrir báða aðila kaupsamningsins um endanlegt kaupverð eignarhlutans. Gera megi ráð fyrir að niðurstaða yfirmats liggi fyrir síðar á þessu ári.

Eftirsóttur staður
» Geysissvæðið í Haukadal er einn eftirsóttasti ferðamannastaður á landinu.
» Deilur hafa staðið um gjaldtöku á svæðinu, og einnig er deilt um verðmatið.