[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Fótbolti Sindri Sverrisson sindris@mbl.is „Fyrir ekki nema 2-3 vikum var ég mjög viss um að ég myndi fara, og vildi hreinlega fara, en nú er ég alveg hættur við það.

Fótbolti

Sindri Sverrisson

sindris@mbl.is

„Fyrir ekki nema 2-3 vikum var ég mjög viss um að ég myndi fara, og vildi hreinlega fara, en nú er ég alveg hættur við það. Nú fer ég ekki neitt,“ segir Birkir Bjarnason, landsliðsmaður í knattspyrnu, við Morgunblaðið með áherslu í röddinni.

Birkir ætlar að halda kyrru fyrir í Englandi hjá hinu sögufræga liði Aston Villa, en fyrr í þessum mánuði leit út fyrir að hann væri á förum til Ítalíu. Birkir hafði þá lítið sem ekkert fengið að spila hjá Villa í vetur, undir stjórn knattspyrnustjórans Steve Bruce, en Bruce hefur nýtt krafta Íslendingsins undanfarið og hrósaði honum í hástert eftir 3:1-sigur á Barnsley um helgina. Birkir lék allar 90 mínúturnar í leiknum en þetta var þriðji deildarleikur hans í byrjunarliði á tímabilinu.

Umboðsmaðurinn var búinn að ræða við ítölsk félög

„Ég er búinn að spila núna fjóra síðustu leiki, en fyrir það hafði ég ekki spilað í mjög langan tíma. Þetta lítur mjög vel út núna. Það hefur gengið ótrúlega vel, bæði hjá mér og liðinu, og ég er bara verulega bjartsýnn,“ segir Birkir, en hann hafði verið orðaður við ítölsku félögin Parma og Spal. Aðspurður hvort hann hafi hreinlega verið á leiðinni í annað félag segir Birkir: „Þetta var alveg komið á ákveðinn rekspöl. Ég veit að umboðsmaðurinn var byrjaður að ræða við ákveðin félög og undirbúa hvað við myndum gera ef af því yrði. En það að vera í Aston Villa er það besta fyrir mig. Þetta er risaklúbbur á Englandi, og það er sérstaklega gott að vera hérna þegar það gengur svona vel eins og undanfarnar vikur. Vonandi getum við farið upp í úrvalsdeildina. Það yrði alveg frábært.“

Villa hefur unnið fjóra leiki í röð í ensku B-deildinni og er nú í 4. sæti, þremur stigum á eftir Derby sem er í 2. sæti en tvö efstu liðin komast beint upp í úrvalsdeild í vor. Liðin í 3.-6. sæti leika um eitt úrvalsdeildarsæti til viðbótar.

„Við erum sennilega með besta hópinn í deildinni, en erum ekki búnir að sýna nægilega mikið miðað við það. Núna lítur út fyrir að við séum búnir að stilla okkur aðeins betur saman, og nú þegar það eru bara þrjú stig upp í 2. sætið þá tel ég að það séu mjög góðir möguleikar á að gera góða hluti,“ segir Birkir.

Ég er ekki þannig kantmaður

Birkir hefur undir stjórn Bruce aðallega leikið sem vinstri kantmaður, eftir að hann kom til Villa frá Basel fyrir ári, en hann fékk tækifæri á miðri miðjunni og hefur gripið það fegins hendi á síðustu vikum:

„Þetta hentar mér margfalt betur. Ég er náttúrlega enginn kantmaður sem er að fara að taka 3-4 varnarmenn á. Það er þannig í þessari deild að kantmennirnir eru svolítið í þessu, og þjálfararnir vilja að kantmennirnir búi mikið til. Ég er ekki svona hreinn kantmaður, þannig séð, svo það hentar mér mun betur að vera kominn lengra inn á miðjuna,“ segir Birkir.