Hollenski tónlistarmaðurinn Tiësto heldur tónleika í Silfurbergi í Hörpu í kvöld en hann var valinn einn af bestu plötusnúðum allra tíma af breska tónleika- og klúbbatímaritinu Mixmag auk þess sem tímaritið Rolling Stone hefur sett hann í fyrsta sæti...

Hollenski tónlistarmaðurinn Tiësto heldur tónleika í Silfurbergi í Hörpu í kvöld en hann var valinn einn af bestu plötusnúðum allra tíma af breska tónleika- og klúbbatímaritinu Mixmag auk þess sem tímaritið Rolling Stone hefur sett hann í fyrsta sæti yfir bestu plötusnúða í heimi.

Tiësto hefur leikið á mörgum fjölmennustu tónlistarhátíðum heims, unnið til margra verðlauna og gefur út tónlist. Um upphitun fyrir tónleika Tiësto sjá meðlimir í íslenska plötusnúðahópnum ViBES, þeir KrBear, KES og Máni.