Ólafur Loftsson
Ólafur Loftsson
Úrslit í formannskjöri Félags grunnskólakennara verða kunngerð í dag klukkan 14, en rafræn kosning hefur staðið yfir á vef félagsins síðan 18 janúar sl. Kjörsókn hefur verið afar dræm, en einungis 8% félagsmanna höfðu kosið nú fyrir helgi.

Úrslit í formannskjöri Félags grunnskólakennara verða kunngerð í dag klukkan 14, en rafræn kosning hefur staðið yfir á vef félagsins síðan 18 janúar sl. Kjörsókn hefur verið afar dræm, en einungis 8% félagsmanna höfðu kosið nú fyrir helgi. Nýr formaður mun taka við embætti af fráfarandi formanni, Ólafi Loftssyni, á aðalfundi Félags grunnskólakennara í maí. Fimm aðilar hafa gefið kost í sér í embætti formanns: Hjördís Albertsdóttir, Kjartan Ólafsson, Kristján Arnar Ingason, Rósa Ingvarsdóttir og Þorgerður Laufey Diðriksdóttir. aronthordur@mbl.is