Snjallsímar Blessuð börnin líta vart upp úr símum sínum nú til dags.
Snjallsímar Blessuð börnin líta vart upp úr símum sínum nú til dags. — Ljósmynd/Getty Images
Nú á þeim tímum þar sem flestir eru öllum stundum með nefið ofan í símum eða tölvum, er ekki úr vegi að staldra við og velta fyrir sér hvað sé til góðs og hvað ekki. Í dag miðvikudag 31. janúar kl.

Nú á þeim tímum þar sem flestir eru öllum stundum með nefið ofan í símum eða tölvum, er ekki úr vegi að staldra við og velta fyrir sér hvað sé til góðs og hvað ekki. Í dag miðvikudag 31. janúar kl. 12-13:30 verður málstofa á vegum Háskólans í Reykjavík undir yfirskriftinni Fíkn eða frelsi? Þar verður velt upp sálrænum og félagslegum áhrifum snjalltækja, samfélagsmiðla og tölvuleikja. Málstofan verður í stofu V101 í HR og þar verður leitast við að svara m.a. eftirfarandi spurningu: Eru börnin okkar að verða þrælar tækninnar eða skilja íhaldssamir foreldrar ekki nýjan heim? Hvað geta foreldrar gert til að stuðla að því að börn nýti snjalltæki, samfélagsmiðla og tölvuleiki í uppbyggjandi tilgangi, í leik, námi og starfi? Hvað telst vera góð notkun og hvað ekki?

• Þorlákur Karlsson, dósent við sálfræðisvið HR spyr í sínu erindi: Af hverju er svona erfitt að leggja frá sér símann? Heljartak sálfræðilegra styrkingarhátta í samfélagsmiðlum og tölvuleikjum.

• Ingibjörg Eva Þórisdóttir, doktorsnemi við sálfræðisvið HR veltir fyrir sér hvort lífið snúist um læk? Niðurstöður rannsókna á sálfræðilegum áhrifum samfélagsmiðla meðal íslenskra unglinga.

• Jóhanna María Svövudóttir, nemandi í tölvunarfræði og Ólafur Freyr Ólafsson, nemandi í viðskiptafræði í HR fjalla um hvernig það er að vera unglingur í dag, alltaf í beinni.

• Margrét Lilja Guðmundsdóttir, aðjúnkt við íþróttafræðisvið HR og sérfræðingur hjá Rannsóknum og greiningu segir frá lærdómi úr fyrri forvarnarátökum, og kemur þar inn á rafrænan útivistartíma.

• Björn Hjálmarsson barna- og unglingageðlæknir, Barna- og unglingageðdeild LSH ætlar að segja frá leiðbeiningum bandarísku barnalæknasamtakanna frá 2016, um hvað sé heilbrigður skjátími.

Umræður og hægt að fylgjast með málþinginu á streymi: livestream. com/ru/fiknedafrelsi2018

Öllum opið og allir velkomnir.