Ferðamenn Fækkun varð í janúar.
Ferðamenn Fækkun varð í janúar.
Töluvert dregur úr fjölgun brottfara erlendra ferðamanna um Keflavíkurflugvöll á milli ára í janúar nú miðað við síðustu ár, samkvæmt talningum Ferðamálastofu og Isavia í Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Töluvert dregur úr fjölgun brottfara erlendra ferðamanna um Keflavíkurflugvöll á milli ára í janúar nú miðað við síðustu ár, samkvæmt talningum Ferðamálastofu og Isavia í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Aukningin nemur 8,5 prósentum milli áranna 2017 og 2018 sem er álíka aukning og var í nóvember og desember. Á milli áranna 2016 og 2017 var aukningin hins vegar 75,3 prósent. Á milli 2015 og 2016 var hún 23,6 prósent og á milli áranna 2014 og 2015 var aukningin 34,5 prósent.