Matvælastofnun varar neytendur með glútenóþol við vegan-grænmetislasagna. Varan er merkt glútenlaus en inniheldur heilhveiti (glúten).

Matvælastofnun varar neytendur með glútenóþol við vegan-grænmetislasagna. Varan er merkt glútenlaus en inniheldur heilhveiti (glúten). Grímur kokkur sem framleiðir vöruna hefur í samráði við Matvælastofnun hafið innköllun á öllum lotum sem framleiddar eru fyrir 5. febrúar 2018.

Glúten er einn af þeim ofnæmis- og óþolsvöldum sem skylt er að merkja á innihaldslýsingu á matvælum. Einnig voru gerðar athugasemdir varðandi aðra þætti á merkingum vörunnar.