Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, hefur verið ráðin til Bláa lónsins og hefur störf 1. júní næstkomandi.
Í tilkynningu frá Bláa lóninu segir að Helga muni verða framkvæmdastjóri Blue Lagoon Journeys ehf., dótturfélags Bláa lónsins sem vinnur að þróunarverkefnum félagsins á sviði ferðaþjónustu. Einnig segir að ráðningin styðji auknar áherslur Bláa lónsins á þeim vettvangi.
„Umhverfi ferðaþjónustunnar er nú að taka byltingarkenndum breytingum, ekki síst vegna stafrænnar þróunar og það er afar ánægjulegt að hafa fengið Helgu til liðs við Bláa lónið til að leiða mjög áhugaverð verkefni á þeim vettvangi,“ segir Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa lónsins, í tilkynningunni.
tobj@mbl.is