Sex verkefni hafa verið valin á Eyrarrósarlistann 2018 og eiga því möguleika á að hljóta Eyrarrósina í ár en hún er viðurkenning sem árlega er veitt framúrskarandi menningarverkefni utan höfuðborgarsvæðisins.
Á listanum eru tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður á Ísafirði, alþjóðlega kvikmyndahátíðin Norðanáttin (Nothern Wave) í Snæfellsbæ, alþjóðlega listahátíðin Ferskir vindar í Garði, LungA skólinn á Seyðisfirði, samtímalistasýningin Rúllandi snjóbolti á Djúpavogi og Skjaldborg, hátíð íslenskra heimildamynda á Patreksfirði.
Að verðlaununum standa í sameiningu Byggðastofnun, Air Iceland Connect og Listahátíð í Reykjavík og segir í tilkynningu að Eyrarrósinni sé ætlað að beina sjónum að og hvetja til menningarlegrar fjölbreytni, nýsköpunar og uppbyggingar á sviði menningar og lista. Alls bárust 33 umsóknir um viðurkenninguna í ár hvaðanæva af landinu.
Eyrarrósinni fylgir tveggja milljóna króna verðlaunafé og auk þess munu tvö verkefnanna hljóta 500 þúsund króna verðlaun. Eyrarrósin verður afhent 1. mars í Neskaupstað, heimabæ þungarokkshátíðarinnar Eistnaflugs sem hlaut Eyrarrósina í fyrra. Eliza Reid, verndari Eyrarrósarinnar, mun afhenda verðlaunin.