Dómstólasýslan Samningur til 5 ára.
Dómstólasýslan Samningur til 5 ára.
Dómstólasýslan verður til húsa á Suðurlandsbraut 14, 108 Reykjavík. Leigusamningur til fimm ára var undirritaður í dag. Starfsemin mun flytjast þangað 15. mars næstkomandi í rúmlega 200 fermetra húsnæði.
Dómstólasýslan verður til húsa á Suðurlandsbraut 14, 108 Reykjavík. Leigusamningur til fimm ára var undirritaður í dag. Starfsemin mun flytjast þangað 15. mars næstkomandi í rúmlega 200 fermetra húsnæði. Í húsnæðinu verður meðal annars gert ráð fyrir fundaraðstöðu stjórnar dómstólasýslunnar sem sömuleiðis má nýta fyrir fræðslu af ýmsum toga, fyrir starfsmenn dómstólanna og aðra. Einnig verður jafnframt gert ráð fyrir aðstöðu fyrir nefnd um dómarastörf og dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara (hæfnisnefnd).