Stefán Rafn Sigurmannsson var markahæsti maður vallarins þegar hann og samherjar í ungverska handboltaliðinu Pick Szeged unnu auðveldan 36:18-sigur á Gyöngyös á heimavelli í ungversku deildinni í gær. Hann skoraði átta mörk fyrir Pick Szeged, þar af fjögur úr vítaköstum.
Stefán hefur leikið vel að undanförnu og var hann einnig markahæstur í 36:20-sigri á Oroshazi í síðustu umferð. Stefán virðist því vera smám saman að fá stærra hlutverk í sterku liði Pick Szeged sem leikur einnig í Meistaradeild Evrópu.
Pick Szeged hefur unnið þrjá síðustu leiki sína og er tveimur stigum á eftir toppliði Veszprém, sem á leik til góða. Þessi tvö lið hafa verið í sérflokki í Ungverjalandi síðustu árin. Stefán gekk í raðir liðsins síðasta sumar frá Álaborg. sport@mbl.is