Á þessum degi árið 1999 komst hljómsveitin Blondie í toppsæti Breska vinsældalistans með lagið „Maria“. Það varð þar með sjötta lag sveitarinnar til að toppa listann en 20 ár voru þá liðin frá fyrsta toppsmellinum.
Á þessum degi árið 1999 komst hljómsveitin Blondie í toppsæti Breska vinsældalistans með lagið „Maria“. Það varð þar með sjötta lag sveitarinnar til að toppa listann en 20 ár voru þá liðin frá fyrsta toppsmellinum. Blondie var ein vinsælasta popphljómsveitin í heiminum á árunum 1978-82 en svo tók hljómsveitin mjög langa pásu. Eftir 17 ára dvöl kom platan No Exit út. Söngkona sveitarinnar, Debbie Harry, var 54 ára þegar platan kom út og jafnframt elst söngkvenna til að koma lagi í fyrsta sæti listans.