Eftiráviska. V-Allir
Norður | |
♠D943 | |
♥KG | |
♦1074 | |
♣ÁG108 |
Vestur | Austur |
♠65 | ♠102 |
♥Á1042 | ♥765 |
♦ÁD8 | ♦KG32 |
♣7653 | ♣KD92 |
Suður | |
♠ÁKG87 | |
♥D983 | |
♦965 | |
♣4 |
Suður spilar 4♠.
Þetta spil frá Slava-bikarnum í Moskvu reyndist mörgum erfitt í vörninni. NS-pörin yfirmelduðu unnvörpum í 4♠ og fengu mörg að vinna þann samning eftir útspil í laufi. Hvernig þá?
Nú, svo sem engin snilld: Drepið á laufás, farið heim á hátromp og hjarta spilað að ♥KG. Vestur dúkkar, auðvitað, og lúmskur kóngur fer upp í borði. Síðan hjartagosi og hann rennur yfir á ás vesturs. Stóra stundin. Nú verður að spila tígli frá ♦ÁDx.
Hjörðin í vestur spilaði laufi í þessari stöðu og sagnhafi náði að henda tígli niður í hjartadrottningu. Menn óttuðust greinilega að suður ætti tígulkóng og tapslag í laufi. Auk þess virtist hjartadrottningin ekki 100% sönnuð í suður.
Nú er alltaf auðvelt að vera vitur eftirá, en er líklegt að suður sé með 2-3 hunda í laufi? Hefði hann þá ekki látið gosann í borði í fyrsta slag?