Skipulags- og byggingarráð Hafnarfjarðarbæjar hefur boðað til kynningarfundar miðvikudaginn 14. mars nk. þar sem framtíðarsýn hverfisins Hraun-Vestur verður kynnt. Fundurinn verður í Bæjarbíói og hefst kl. 20.

Skipulags- og byggingarráð Hafnarfjarðarbæjar hefur boðað til kynningarfundar miðvikudaginn 14. mars nk. þar sem framtíðarsýn hverfisins Hraun-Vestur verður kynnt. Fundurinn verður í Bæjarbíói og hefst kl. 20.

Á hönnunarstiginu hefur hverfið fengið viðurnefnið „Fimm mínútna“ hverfið. Hugmyndin gengur út á að íbúar geti fengið flesta þjónustu í fimm mínútna göngufjarlægð frá miðju hverfisins, segir í tilkynningu um fundinn.

Þar segir ennfremur að í hverfinu muni kveða við nýjan tón í skipulagsmálum þar sem áhersla verði lögð á góða blöndun íbúðarbyggðar, þjónustu, létts iðnaðar, verslana, skóla, dagvistunar- og frístundasvæða. Bílastæði og bílastæðahús verða undir byggðinni að miklu leyti og útfærslur eru á götumynd að norrænni fyrirmynd, á sama tíma og aðgengi að almenningssamgöngum sé eins og best verður á kosið.

Hugmyndin að Hraun-Vestur hefur verið í þróun í nokkur ár.

„Unnið hefur verið að þessum hugmyndum allt kjörtímabilið. En þar er leitast við að mæta kröfum nýrra kynslóða sem eru að fara að koma sér upp heimili en um leið spennandi kostur fyrir fólk sem er komið á þann stað í lífinu að vilja minnka við sig og hafa viðhald í lágmarki og vera í nálægð við miðbæjarþjónustustig. Hraun-Vestur er ekki bara ný framtíðarsýn heldur er hverfið ef af verður nýtt glæsilegt andlit Hafnarfjarðar,“ segir m.a. í tilkynningu frá Hafnarfjarðarbæ.