Tekur flugið Vænghaf arnarins er mikið og fegurð fuglsins á flugi óumdeild.
Tekur flugið Vænghaf arnarins er mikið og fegurð fuglsins á flugi óumdeild. — AFP
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Á dögunum var haldin svokölluð vorhátíð arnarins í Ulaanbaatar, höfuðborg Mongólíu. Kasakar þar í landi halda með þessari hátíð upp á 6.
Á dögunum var haldin svokölluð vorhátíð arnarins í Ulaanbaatar, höfuðborg Mongólíu. Kasakar þar í landi halda með þessari hátíð upp á 6.000 ára sögu arnarveiða og freista þess í leiðinni að lokka ferðamenn til að líta augum fegurð arnanna og vinna þannig að því að þessi ævaforna hefð arnarveiða viðhaldist. Ernir eru stórfenglegir fuglar og mikið augnayndi í nálægð, en ekki er síður magnað að fylgjast með þeim fljúga um loftin blá í öllu sínu veldi.