Útivist Yndisleg leið til að slaka á.
Útivist Yndisleg leið til að slaka á. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Nú þegar daginn er farið að lengja og fólk horfir til komandi sumars er tilvalið að huga að lengri gönguferðum sem bóka þarf með fyrirvara. Fátt er betra fyrir líkama og sál en að ganga dagana langa í óbyggðum.

Nú þegar daginn er farið að lengja og fólk horfir til komandi sumars er tilvalið að huga að lengri gönguferðum sem bóka þarf með fyrirvara. Fátt er betra fyrir líkama og sál en að ganga dagana langa í óbyggðum. Fyrirtækið Þín leið verður með kynning á hálendisferðum sumarsins nk. laugardag, 10. mars, kl. 13-14 í Jógasmiðjunni í Spöng í Grafarvogi.

Kynntar verða ferðir um Kjöl, Fjallabak og heilsuferð í Þjórsárdal. Einnig verða dagsgöngur sumarsins kynntar og síðdegisgöngur vorsins.

Ferðir fyrirtækisins byggjast m.a. á því að stunda jóga úti í náttúrunni.